30.03.1928
Neðri deild: 61. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2592 í B-deild Alþingistíðinda. (2459)

17. mál, gin- og klaufaveiki

Pjetur Ottesen:

Jeg vil af hálfu okkar, sem flytjum brtt. við þetta frv., lýsa yfir því, að það getur orðið samkomulag um að taka aftur till. til 3. umr. með því móti, að málið verði ekki tekið á dagskrá fyr en eftir páska. Því að svo stendur á, að tveir hv. þm. fara burt á morgun. En þess er vænst, að málið verði tekið fyrir strax upp úr páskum.