14.04.1928
Neðri deild: 72. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2655 í B-deild Alþingistíðinda. (2482)
17. mál, gin- og klaufaveiki
Bjarni Ásgeirsson:
Jeg ætla að gera grein fyrir atkv. mínu. Helst hefði jeg viljað fylgja till. hv. þm. Borgf. (PO: Er hv. þm. að heykjast líka?). En nú verður að gæta hófs og hleypa ekki málinu í strand. Hv. þm. Borgf. er að kafsigla sig. (PO: Tómur misskilningur). Nú er komið að þingslitum og hver breyting á frv. hlýtur að verða til þess, að það dagi uppi. Núverandi ástand má ekki haldast, en frv. er mjög til bóta eins og það er nú. Í trausti þess, að seinna megi ef til vill koma fram umbótum á lögunum, greiði jeg atkv. móti brtt.