14.04.1928
Neðri deild: 72. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2656 í B-deild Alþingistíðinda. (2483)

17. mál, gin- og klaufaveiki

Magnús Guðmundsson:

Hæstv. forsrh. viðurkennir að hafa skrifað um mig 10–20 skammagreinar fyrir það, að jeg hefi farið eins að og hann segist ætla að gera og hafa gert. Þetta vildi jeg benda á til að sýna sanngirni hæstv. ráðh. í minn garð. Annars skifti jeg mjer ekki af, hvað einhver danskur dýralæknir hefir sagt um mig, en skora samt á hæstv. ráðh. að sýna mjer það, svo að jeg geti svarað, ef jeg vil. Má vel vera, að þessi dýralæknir sje einnig óánægður með hæstv. ráðh.