20.03.1928
Neðri deild: 52. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2727 í B-deild Alþingistíðinda. (2512)
15. mál, strandferðaskip
2512Hákon Kristófersson:
* Mig undrar, að háttv. þingmaður V.-Húnv. skyldi orða ummæli sín í minn garð þannig, að jeg hafi verið að trolla í landhelgi Morgunblaðsins eftir rökum.
Jeg vitnaði aðeins í þingskjal frá honum sjálfum, og jeg bjóst ekki við, að hv. þm. mundi taka mjer það illa upp, en annars hjelt jeg, að álit hv. þm. væri hans eigin rök og Morgunblaðið ekki hið sama.
Annars virðist þessum hv. þm., sem máli sínu sje best borgið með útúrsnúningum; jeg mælti ekki eitt óvingjarnlegt orð í hans garð, svo að hann gæti fengið átyllu til slíkrar framkomu. En mjer er spurn: Er það frambærilegra að skattleggja ferðir fátækra manna með ströndum fram en sumt af því, sem Morgunblaðið hefir fram borið? (HJ: Er rjettara að skattleggja ferðir manna á landi?). Mjer er ekki kunnugt um, að ferðir manna á landi sjeu skattlagðar. Það er að vísu rjett, að lagður hefir verið á bifreiðaskattur, en það er alt annars eðlis, þar sem sá skattur á einmitt að verða til þess að gera flutninga með bifreiðum sem víðtækasta.
Annars var jeg ekkert að fetta fingur út í þetta mál, aðeins að sýna samræmið í till. hv. þm. Þessu varð hv. þm. svo reiður, að hann segir, að jeg hafi tekið þessi ummæli frá Morgunblaðinu. Jeg tek þetta samt ekki illa upp fyrir hv. þm., því að þetta er ekki í fyrsta sinn, sem hann fer út fyrir þau takmörk, sem öðrum hv. þm. gleymist ekki að taka tillit til.
(* Ræðuhandr. óyfirlesið.)