24.03.1928
Neðri deild: 56. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2738 í B-deild Alþingistíðinda. (2523)

15. mál, strandferðaskip

Sigurður Eggerz:

Það er aðeins örstutt athugasemd. Jeg vildi, að það sæist í umr., af hverju jeg greiði atkv. á móti þessu frv. Ástæðan er ekki sú, að það sje ekki æskilegt í sjálfu sjer að eignast nýtt strandferðaskip, heldur að það er óverjandi af fjárhagslegum ástæðum að leggja nú út í þetta mál, og fyrir því hefi jeg gert grein annarsstaðar. Hver þm. verður að gera það upp með sjálfum sjer, hvað hann vill ganga langt í fjárútlátum. Þingið á ekki að varpa því upp á stj.; þm. eiga sjálfir að bera ábyrgðina á því, hvað langt er gengið. Ef heimildin verður samþ., má búast við því, að skipið verði bygt, en á því eru enn ekki ráð.