28.01.1928
Efri deild: 8. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2777 í B-deild Alþingistíðinda. (2549)
32. mál, ungmennafræðsla í Reykjavík
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Út af fáeinum aths. í ræðu hv. 3. landsk. vildi jeg aðeins skýra þann mun, sem er á þeirri leið, sem hjer er bent á, og því, sem hann og fleiri hv. þm. börðust fyrir í fyrra.
Jeg held, að það sje misminni hjá hv. þm., að jeg hafi lagst á móti aukinni alþýðufræðslu í Reykjavík, þó að jeg vildi ekki samþykkja samskólafrv. í fyrra.
Aðalmunurinn er sá, að jeg vildi stofna skólann nú þegar og láta hann vaxa hægt og hægt, og tengja við hann kennara eftir því sem kenslukraftar væru auknir og reynsla fengist um þá menn, sem störfuðu við hann. Jeg hafði aftur á móti ekki trú á því, að það væri heppilegt að byrja með stóran skóla og ráða menn af handahófi við hann, og svo kæmi það fyrir, eins og á sjer stað við nær alla skóla, að töluvert af því kennaraliði, sem búið væri að festa við skólann, væri ekki heppilegt til frambúðar. Það er ekki alveg rjett skilið hjá háttv. 3. landsk., að það kenslufyrirkomulag, sem átt er við í frv., sje eins og það, sem gert var ráð fyrir í fyrra. Gallinn þótti mjer sá, að breytingin, sem þá var fyrirhuguð, var ekki mikið annað en að útvega betra húsnæði.
Samskólafrumvarpið leggur alt of litla áherslu á verklega fræðslu. En jeg get kannske best skýrt, hvað fyrir mjer vakir, með því að benda á fyrirkomulagið í þeim eina sveitaskóla, sem er dálítið sambærilegur við það, sem hjer gæti komið til greina. Í Laugaskólanum læra nemendurnir t. d. að smíða glugga og hurðir og margt fl. í væntanlega viðbótarbyggingu við skólann. Þó að þessi vinna sje ekki eins góð og sú, sem útlærðir menn myndu leysa af hendi, ætti nemendunum að verða hagnaður að því að geta síðar unnið slíkt sjálfir á búum sínum. Fyrir kvenfólk er þegar byrjað á kenslu í matreiðslu. Sömuleiðis er byrjað að steypa steina. Slík kensla held jeg, að ætti vel við hjer í Reykjavík, með nokkurri meiri fræðslu. En þessi fræðsla er ekki iðnfræðsla í almennum skilningi, heldur aðeins almenn fræðsla, en það er mikil nauðsyn á því, að iðnskólinn og vjelstjóraskólinn geti haldið áfram sinni kenslu, þrátt fyrir það, að fleiri skólar í svipuðum stíl og þessi kæmust á fót.
Jeg vona, að hv. þdm. megi af þessum fáu orðum verða ljóst, að hjer vakir fyrir mjer önnur kensla en sú, sem átti að sjá fyrir með frv. í fyrra.