16.03.1928
Efri deild: 49. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2790 í B-deild Alþingistíðinda. (2557)

32. mál, ungmennafræðsla í Reykjavík

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg þarf aðeins að segja fáein orð. — Mjer finst, að þegar þetta mál er athugað og litið til þess, hve lítill áhugi hefir komið fram á því hjer í bænum, sje ekki vert að leggja nú þegar í miklar og dýrar framkvæmdir. Skólar hafa reynst best þar, sem áhugi fólksins, einstaklinga, hjeraða eða fjelaga, hefir borið þá fram og barist fyrir þeim. Núpsskólinn, sem er elsti hjeraðsskólinn, hefir verið rekinn af einum manni, en umhyggja Vestfirðinga fyrir honum hefir orðið aðalstoðin. Öðrum unglingaskólum bæði sunnan og norðanlands er hrundið af stað með almennum samtökum og almennum áhuga. Með því að samþ. till. hv. 3. landsk. yrði alt of mikið lagt upp í fangið á Reykvíkingum. Jeg óska eftir því, að almennur áhugi vakni fyrir þessu máli hjer í Reykjavík. Slíkur áhugi virðist vera nauðsynlegur til þess, að skólarnir sjeu sóttir. Hvítárbakkaskólinn, sem hefir ekki góð hús, og Laugaskólinn, sem á góð hús, virðast vera mjög vel sóttir. Þar á móti er Eiðaskólinn, sem hefir ágæta kenslukrafta og er gert vel við af ríkinu, ekki vel sóttur. Það er eins og fólkið vilji ekki fara þangað. En nú í mars eru komnar 130 umsóknir um Laugaskólann, sem getur aðeins tekið á móti 60 nemendum. Einnig er orðið fult á Hvítárbakka. Þetta sýnir, að velvild hjeraðanna er skólunum nauðsynleg. Að Hvítárbakka sækja margir úr heimahjeraðinu, en að Hvanneyri, sem er þó góður skóli og í alla staði fullkominn, sárafáir. Flestir nemendur þar eru úr fjarlægari hjeruðum. Er þetta af því, að of mikið hafi verið gert fyrir Hvanneyri? Það er næstum ástæða til að halda það. Hjer er ekki neitt verið að deila um lokatakmarkið, en það, sem jeg óska eftir, er, að skólinn hjer vaxi upp hægt og hægt, og að eftir hæfilegan tilraunatíma, t. d. 4 ár, verði nægileg reynsla fengin til þess, að hægt sje að færa hann í nokkuð fastar skorður. Mjer finst því hv. 3. landsk. vera helst til bráðlátur, og eru aðrir það þó meira en hann. En svo gæti til tekist, ef hrapað væri að málinu, að svipað færi fyrir þessum skóla og stjórnarskrá Pólverja, sem franskur maður var fenginn til að semja. Hún var að vísu ágætlega samin, — en var bara aldrei notuð.