11.04.1928
Neðri deild: 68. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2798 í B-deild Alþingistíðinda. (2568)
32. mál, ungmennafræðsla í Reykjavík
Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Fyrir síðasta þingi og einnig þessu þingi hefir legið annað frv. um unglingafræðslu í Reykjavík. Því frv. hefi jeg og margir aðrir fylgt, en hjer kemur annað frv., sem ekki ríður í bág við það, en ætlað er að fylla í hið auða bil, sem er á milli núverandi ástands og þess, að komið sje upp fullkomnum unglingaskóla í Reykjavík, en höfuðskilyrðið fyrir fullgildri ungmennafræðslu er vitanlega húsnæði, gott og myndarlegt, sem fullnægir kröfum til bóknáms, og ekki síður hins margvíslega iðnaðarnáms, sem ungmennafræðslunni á að fylgja. Nú er, eftir því sem hag og hálfnuðum fyrirtækjum bæjarfjelagsins er háttað, engin von til þess, að slíkt skólahús komist upp á næstu árum, og er því augljós nauðsyn þess, að eitthvað sje gert þar til hinum fullgilda skóla verður komið upp. Af þeim ástæðum, að þörfin á unglingafræðslu er brýn, og af því að hægt er að gera nokkuð til gagns áður en fullnægt er þörfinni, fylgi jeg þessu frv.
Jeg veit, að það mun verða örðugt að reka skóla með því fyrirkomulagi, sem hjer er ætlast til, vegna þess að ekkert víst húsnæði er til og vegna þess að starfa verður á mörgum stöðum, og oftast á óhentugum tíma dags. Jeg veit líka, að skóla, sem þannig er háttað, mun verða örðugt og ókleift að keppa við þá skóla, sem fyrir eru, eins og t. d. gagnflæðaskólann, sem er í sambandi við lærdómsdeild mentaskólans; en jeg hefi þá trú, að slík starfsemi sem þessi muni reka á eftir því, að unglingaskólaþörf Reykjavíkur verði fullnægt. Jeg hefi þá trú, að hann komi fyr, ef nú verður byrjað á að starfa að unglingafræðslu, þó við þröngan kost sje. Mentmn. hefir orðið sammála um þetta og leggur til, að frv. verði samþ. með nokkrum breytingum, sem flestar eru orðabreytingar eða smáleiðrjettingar.
Fyrsta brtt. er um það að setja orðið ungmennaskóli í staðinn fyrir gagnfræðaskóli. Jeg hefi borið þessa breytingu fram áður við annað frv., í þeirri meiningu að benda til þess, að þessi unglingaskólafræðsla eigi meira að sækja sína fyrirmynd í hina nýrri unglingafræðslu hinna stóru landa heldur en til miðskólanna gömlu, sem upphaflega voru sem millistig á milli barnafræðslunnar og lærdómsdeildanna.
Önnur brtt., a-liður, er um það, að handiðnir skuli kendar í skólanum, eftir því sem við verður komið. Handwiðnir heimta gott húsnæði og mikinn útbúnað, og verður þeim ekki komið við nema að litlu leyti meðan hvortveggja vantar. B-liður till. er um það eitt að herða heldur að því, að skólastjóri gefi fáar undanþágur frá þátttöku í námsgreinum.
Þriðja brtt. er leiðrjetting.
Fjórða brtt., a-, b- og c-liður, er um það, að formaður skólanefndar skuli skipaður til þriggja ára, eða jafnlangs tíma og aðrir skólanefndarmenn.
Jeg skal játa það, að mjer hefði verið næst skapi, að ekki hefði verið sjerstök skólanefnd fyrir þessum skóla, heldur hefði sama nefndin staðið fyrir honum eins og barnafræðslunni hjer í Reykjavík. En það má vel vera gagnlegt að hafa sjerstaka skólanefnd fyrir þennan skóla, á meðan verið er að hrinda ungmennafræðslunni í framkvæmd. Þá verður það höfuðstarf þessarar nefndar að auka þennan skóla, svo að hann megi teljast fullgildur.
Fimta brtt. er orðabreyting.
Sjötta brtt. a. er um nánari skilyrði fyrir greiðslu ríkissjóðsstyrksins. Ákvæði frv. eru ófullnægjandi.
Þá vil jeg nefna b-lið brtt., um að fræðslumálastjórnin ákveði, að fengnum tillögum skólanefndar, skólagjöld nemenda. Það er viðbúið, að kenslan verði svo margháttuð í þessum skóla, að það sje ekki heppilegt að hafa föst ákvæði um skólagjaldið í frv., og virðist því sanngjarnt að fá þetta ákvæðisvald í hendur skólanefnd og fræðslumálastjórn.
Þá skal jeg að lokum geta ákvæðisins um það, hvernig skólinn verði kostaður. Stjórnin skipar tvo fasta kennara við skólann, og skulu laun þeirra beggja greiðast úr ríkissjóði, en annar kostnaður að hálfu af ríkis- og bæjarsjóði. Jeg skal taka það fram, að þessi ákvæði eru tæplega í góðu samræmi hvort við annað, og geta því ekki orðið til neinnar fyrirmyndar, þegar tekin verður allsherjarákvörðun um greiðsluhlutföll ríkis- og sveitarsjóða til ungmennafræðslu í landinu. En þar sem hjer er um bráðabirgðalöggjöf að ræða, hefir ekki þótt vert að breyta ákvæðum Ed.
Þá er loks lagt til, að nafni frv. verði breytt í samræmi við efni þess.