11.04.1928
Neðri deild: 68. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2802 í B-deild Alþingistíðinda. (2570)
32. mál, ungmennafræðsla í Reykjavík
Magnús Jónsson:
Jeg vil aðeins í sambandi við þetta mál láta í ljós, að mjer þykir það mjög leiðinlegt, að ekki skuli hafa verið tekið fyrir annað mál, sem þessu er náskylt og var afgreitt frá nefnd töluvert fyr, en það er frv. um samskóla Reykjavíkur. Það frv. er enn ekki komið hjer til umr., en jeg tel það að öllu leyti miklu fullkomnari lausn á málinu heldur en fæst með þessu frv. Ef mönnum hefði þótt það of stórt bákn, þar sem blandað er saman mörgum skólum, þá hefði mátt breyta því þannig, að gagnfræðaskólinn væri einn eftir. Jeg hefi þó gengið inn á að vera með þessu bráðabirgðafyrirkomulagi.
Jeg á bágt með að skilja, hvað mönnum getur gengið til. þess að amast við jafneðlilegri lausn skólamálanna í Reykjavík eins og þeirri, sem felst í samskólafrumvarpinu. Ríkið rekur hjer skóla, sem vantar þak yfir höfuðið, og fær hjer aðra aðilja til þess að taka þátt í kostnaðinum við það. Bæði iðnaðarmenn og verslunarstjettin vilja og leggja fram talsvert fje af mörkum. Og gagnfræðaskólamál Reykjavíkur verður að leysast mjög bráðlega. En þetta frumvarp hjer tel jeg enga lausn, af þeirri einföldu ástæðu, að vanrækt er að sjá fyrir því, sem erfiðast er, en það er húsnæðið. Þessi skóli mun auk þess naumast geta komið í staðinn fyrir venjulegan gagnfræðaskóla, af þeirri ástæðu, að hann hlýtur mest að starfa sem kvöldskóli, en það er alt annað fólk, sem óskar að ganga á kvöldskóla en gagnfræðaskóla. Þeir, sem ganga á gagnfræðaskóla, líta á það sem sitt aðalnám, en kvöldskólanemendur eru venjulega bundnir við alt annað starf á daginn og hafa námið einungis sem aukastarf. Jeg hefi þó fylgst með nefndinni, í von um, að þetta verði ekki til að tefja fyrir því, að upp komist nokkurnveginn fullkominn gagnfræðaskóli í Reykjavík, og vil um leið vísa til þess, sem hæstv. ráðh. sagði í ræðu sinni áðan, að hann lítur ekki á þessa tilraun sem neina slíka lausn, sem rjettlæti það á neinn hátt, að því yrði frestað að koma upp reglulegum gagnfræðaskóla fyrir bæinn.