16.04.1928
Efri deild: 72. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2807 í B-deild Alþingistíðinda. (2581)

32. mál, ungmennafræðsla í Reykjavík

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Hv. 2. landsk. hefir nú flutt brtt. við frv. Jeg hefi þá skrítnu aðstöðu að vera að miklu leyti sammála hv. 2. landsk., en neyðast þó til þess að greiða atkvæði á móti brtt. hennar, af því, hvernig ástatt er um þetta mál.

Í dag mun vera næstsíðasti þingdagurinn, og bíða þó allmörg mál enn afgreiðslu í hv. Nd. Þessi deild hefir haft vel undan í vetur, en vegna annríkisins í Nd. nú, væri það að tefla þessu máli í tvísýnu, að fara nú að gera breytingar á frv. Jeg skal taka það fram og biðja hv. 2. landsk. að athuga það, að ekki eru hundrað í hættunni, þó að frv. standi óbreytt eins og hv. Nd. skildi við það. Ed. skildi svo við frv., að skólinn átti að heita gagnfræðaskóli og prófin gagnfræðapróf. En þegar það kom til Nd., tóku við því hinir duglegu samskólamenn og sögðu, að þessi skóli væri hvort sem er svo lítill hluti af hinum væntanlega, stóra skóla, að ekki tæki því að gera um hann ákveðnar tillögur, þar sem hann yrði aðeins til bráðabirgða. Nálega öll mentamálanefnd Nd. var sammála um þetta., og það var síðan samþykt með yfirgnæfandi meiri hluta. Jeg vona því, að hv. 2. landsk. sjái, að það er ekkert vit í því að fara að senda frv. á milli deilda aðeins vegna orðalagsins, enda eru engar líkur til þess, að Nd. fjellist á þetta. Jeg skal líka taka það fram, að jeg lagði ekki í neina baráttu við mentmn. Nd., þó að jeg teldi hennar tillögur ekki til bóta. En eins og jeg hefi áður tekið fram, álít jeg, að enn sje ekki fundið betra orð en gagnfræðaskóli yfir ungmennaskóla í kaupstöðum.

Þó finst mjer rjett, að þeir hv. þm., sem vilja, að frumvarp þetta verði samþ., láti það standa sem komið er.

Þá er hinn liður brtt. á þskj. 782, sem frekar má telja efnisbreytingu. Þar er tekið fram, að nám þetta skuli veita aðgang að gagnfræðaprófi, ef bætt er við 3. deildinni. Jeg skil þetta þó ekki svo, að til þess sje ætlast, að þessi skóli sje settur. Í samband við hina tvo mentaskóla, heldur þyki hv. flm. myndarlegra að sýna með því, hvert námið stefni. Í eðli sínu væri formlegra að hafa þetta svona. En þar sem hv. Nd. hefir nú litið öðruvísi á málið, þá virðist mjer frv. teflt í voða, ef það er látið ganga til þeirrar hv. deildar aftur. Veit jeg heldur ekki, hversu sárt hv. Nd. muni vera um þetta frv. Jeg get bætt því við, að ef það á að verða mitt hlutskifti að gefa út reglugerð fyrir þennan skóla, þá mundi jeg taka það til athugunar, hvort ekki mætti gera ráð fyrir þremur bekkjum.