28.01.1928
Efri deild: 8. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2819 í B-deild Alþingistíðinda. (2591)
33. mál, vernd atvinnufyrirtækja gegn óréttmætum prentuðum ummælum
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Háttv. 1. þm. G.-K. segir, að ein og sama rjettarregla, eða öllu heldur rjettarvenja, gildi um skaðabótaskyldu allra aðilja, sem hjer um ræðir. En er hann fór að rökstyðja mál sitt, kom í ljós, að hann álítur, að svo eigi ekki að vera.
Menn munu yfirleitt hvorki telja heppilegt nje fallegt að reka hross að vetri til norðan yfir heiði til útflutnings. Þetta er samt gert. Einstakur maður á hrossin; þau eru verslunarvara hans. Það er ritað í blöðin um meðferð hrossanna. Þó var þetta mannúðarmál, algerlega alment mál frá drenglyndisins sjónarmiði. En að því er virðist líta bæði undirrjettur og hæstirjettur þannig á, að rjettur hrossakaupmannsins sje svo ríkur, að þess vegna megi alls ekki ræða um það mannúðarleysi, er kom fram í þessum framkvæmdum. Eftir þeim skoðunum hans, þ. e. hv. 1. þm. G.-K., þá er þetta ekki leyfilegt, af því að hrossin eru einstaklingseign. Ef hann, eigandinn, skaðast, bera honum skaðabætur, því að einstaklingsverndunin er svo sterk.
Hugsum oss á hinn bóginn, að kaupfjelag hjer suður í Reykjavík kaupi hross norður í landi og reki þau suður yfir heiði að vetrarlagi í frosti og fannkomu, svo að þau væru illa haldin. Hv. 1. þm. G.-K. ákærir þetta í nafni mannúðarinnar. Hjer er þá á sama hátt að ræða um hindrun frjáls viðskiftalífs, en þótt undarlegt megi virðast, þá er hann að sinni eigin skoðun ekki skaðabótaskyldur, af því að fjelag á í hlut. Það virðist og mega draga af málsskjölum, að málafærslumaður hans, Jón Ásbjörnsson hæstarjettarmálaflutningsmaður, hafi í rjettinum haldið fram sömu skoðunum: að vegna þess, að samvinnufjelögin sjeu mjög almennur fjelagsskapur, þá verði þau að þola gagnrýni umtölu- og bótalaust.
Það, sem hjer í þessu frv. er farið fram á, er aðeins þetta: Ef hv. 1. þm. G.-K. rekur t. d. tóbaksverslun undir sínu eigin nafni, eða myndar til þess hlutafjelag, eða kaupfjelag annast eða landið rekur á sinn kostnað, þá sje öll „kritik“ á þetta fyrirtæki, tóbaksverslunina, í hvers höndum sem hún er, jöfn fyrir dómstólum landsins. Í þessu er endurbótin fólgin. Allir aðiljar skulu vera jafnrjettháir, hvort þeir heita V. B. K., kaupfjelag, hlutafjelag eða landsverslun. En það vill hann ekki. Hann má ekki heyra það nefnt, svo að hann umhverfist ekki allur. Svo rótgróin er honum orðin heiftin í garð Samvinnufjelaganna. Hitt aðgætir hann ekki, að kaupfjelögin koma honum ekki nokkra lifandi minstu ögn við, frekar en Samvinnubónda norður í Húnavatnssýslu kemur við verslun hjer í bæ, sem háttv. 1. þm. G.-K. á og ber hans nafn. En háttv. þm. vill hafa leyfi til þess að vaða inn í Samvinnufjelögin og finna þar að því, er honum sýnist, og grafa undan þeim eftir getu. Á sama hátt ætti þá að vera leyfilegt að skrifa t. d. um Kveldúlf og gera að umtalsefni, að honum væri stjórnað af miður góðum hvötum, að hann fjefletti almúgann og rakaði gróðanum í sinn vasa, og á allan mögulegan hátt að vekja tortrygni og grun gagnvart fjelaginu, og það alt ár þess að þurfa að óttast skaðabótakröfu frá þess hendi, því að hún yrði dæmd ógild. (BK: Kveldúlfur er ekki almenningsfyrirtæki). Nei, en hv. þm. ætti sakir aldurs síns, þótt ekki væri annað, að vita, að það er ekkert nema hreinn og beinn slettirekuskapur af honum að vilja blanda sjer í rekstur og sjermál kaupfjelaganna. Það er bæði sannað og sjálfur hefir hann og játað, að hann vill áskilja sjer og öðrum utanfjelagsmönnum sama sinnis rjett til innrásar og trúir því í villu síns vegar, að með þessari iðju sinni sje hann að gera almenningi gagn. Játning þessa háttv. þm. um það, hvaða leyfi hann vill hafa til þess að vaða inn í sjermál kaupfjelaganna, er ærin nóg sönnun þess, að þetta frv. á fullan framkomurjett og varðar miklu, að nái fram að ganga.
Jeg ætla ekki að fara frekar inn á þá braut að ræða um einstakar verslanir hjer í Reykjavík, sem bera nöfn ýmsra dánumanna, er þær hafa stofnað. Má vel vera, að hv. 1. þm. G.-K. þyki strembið að þurfa að geifla á saltinu á sínum gömlu dögum. En það þarf hann ekki að halda, að kaupfjelagsskapnum stjórni nú þeir menn, er leyfi honum, þótt á grafarbakkanum sje, að skiljast svo við þennan heim, að ekki sje gerð gangskör að því að lagfæra þær ófullkomnu rjettarvenjur, sem hafa verið skjólgarður utan um moldvörpuframferði hans gagnvart samvinnufjelögum landsins. Getur hann kent sjer og sínum aðgerðum um, ef hans ráð eru nú ekki tekin til greina.
Jeg nenni ekki að elta ólar við að leiðrjetta vanþekkingarvillur hv. þm. í kaupfjelagsmálum, enda skiftir það minstu máli. Hann heldur því fram, að samábyrgð finnist vart annarsstaðar en hjer á Íslandi. Þetta er alrangt, og það er hart, að háttv. þm., sem fengist hefir við verslun alllangt skeið æfi sinnar og sjálfur verið utan og ferðast um í Danmörku, það er hart, segi jeg, að hann skuli leyfa sjer að halda fram svona blekkingum, þótt hann sje hinsvegar ber að því að hafa sagt ósatt um þessi mál oft áður. Þetta er ekkert annað en vísvitandi blekking. Samábyrgð er og hefir verið fast einkenni danskra kaupfjelaga. Þar í landi eru hátt á annað þúsund kaupfjelög, sem hafa samábyrgð. Hjer er um að kenna hans eigin vanþekking eða illvilja. Hinsvegar skal jeg játa algerða vanþekking mína á því, hvernig þessu er háttað í Rússlandi. Jeg vildi því, úr því að háttv. þm. vitnar í það land — og jeg vil ekki að óreyndu ætla honum að gera það heimildalaust út í loftið —, mælast til þess, að hann leggi fram einhver gögn viðvíkjandi rússneskri samvinnu. Jeg býst við, að jeg muni skilja þau tungumál, sem hann skilur.
Jeg vonast til, að háttv. þm. spari sjer þá niðurlæging, sem af því leiðir að auglýsa frekar fáfræði sína. Það ber vott um talsvert sjálfsálit, að hann leyfir sjer að halda því fram, að skrif hans hafi haft áhrif. Sannleikurinn er sá, að ekkert mark hefir verið á honum tekið. Eina ástæðan til þess, að hann var ekki dæmdur í þungar skaðabætur fyrir fjandskap sinn við kaupfjelögin, er að áliti dómstólanna sú staðreynd, að níð hans hafi engan ávöxt borið. Kaupfjelögin sjeu jafnsterk og áður.
Háttv. þm. reynir að halda því fram, að árangurinn af skrifum sínum sje sá, að samábyrgð sje nú ekki lengur tekin gild sem veð. Ef sanna á, að samábyrgð sje gagnslaus af því að kaupfjelögum hafi í vissum tilfellum verið gefnar eftir skuldir í bönkum, þá ætti með sömu ályktunaraðferð sjálfskuldarábyrgð að vera einskisvirði, úr því að slík lán hafa stundum tapast. Jeg vonast til þess, að háttv. þm., þótt farinn sje að eldast, hafi enn skarpleika til þess að fylgjast með í þessari rökleiðslu, að öll veð, sem bankinn hefir einu sinni tekið gild, en samt orðið að gefa eftir af einhverjum ástæðum, verða að teljast hliðstæð að þessu leyti og jafntrygg eða ótrygg, eftir því sem á er litið.
Háttv. þm. hjelt því fram í hinum nafntogaða pjesa sínum, að samábyrgðin væri einskis metin sem trygging. En nú má sýna með rökum, og þeim óhrekjandi, að enn sem komið er hefir sama sem ekkert fje tapast á samábyrgðarfyrirtækjum, og það á sama tíma, sem einkafyrirtækin hafa tapað miljónum og eru að skaða bankana um tugi miljóna. Það er því svo mikil ósvífni og bíræfni að halda því fram, að samábyrgðin sje að engu metandi sem trygging, þegar sýnt er, að á sama tíma og einkafyrirtækin tapa tugum miljóna, eru það aðeins fáir tugir þúsunda, sem tapast hafa við samábyrgðina. (BK: Það hefir ekkert reynt á samábyrgðina enn). Hann getur verið viss um það, hv. 1. þm. G.-K., að það fellur aldrei í hans skaut að ákveða, hvenær samábyrgð skuli notuð eða ekki. Hvað kann að verða í öðrum heimi, skal jeg láta ósagt um. (BK: Hæstv. ráðherra veit, að jeg er dauður). Hann er nú að vísu ekki dauður enn, þó að margt bendi til, að hann sje kominn á grafarbakkann, en annars vona jeg hans vegna, að hann eigi líf fyrir höndum hinumegin og að þar sje um einhverja samábyrgð að ræða, svo að hann geti haldið áfram að þjóna lund sinni.
Jeg skal nefna dæmi. Ef verslunin Björn Kristjánsson lánar t. d. kaupfjelaginu á Akureyri fje, sem ekki stendur í skilum með greiðslu þess, heldur þá háttv. 1. þm. G.-K., að önnur kaupfjelög eigi að borga það? (BK: Þetta eru tómar hártoganir). Nei, þetta eru engar hártoganir; það er ekkert annað en einber fáviska háttv. þm. á gildi samábyrgðarinnar.
Annars vil jeg taka það fram að lokum, að þó að hv. þm. sje nú dauður hjer í þessari hv. deild, þá vona jeg samt, okkar beggja vegna, að hann lifi það lengi, að við fáum tækifæri til þess að eigast frekara við um þetta mál, þegar það kemur til 2. umr. Enn er í huga hans sú fárlega meinvilla, að það sje gott og blessað, að óviðkomandi menn vaði inn á kaupfjelögin með rógi og illkvitni, en leggja síðan hendina á brjóst sjer og segja: Við gerðum þetta almennings vegna og í góðu skyni!