28.01.1928
Efri deild: 8. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2837 í B-deild Alþingistíðinda. (2596)

33. mál, vernd atvinnufyrirtækja gegn óréttmætum prentuðum ummælum

Fjmrh. (Magnús Kristjánsson):

Jeg vil fyrst leyfa mjer að svara því, sem hv. 3. landsk. sagði. Hann virtist álíta, að það væri eðlismunur á þessum tveimur ábyrgðum, sjálfsskuldarábyrgð og samábyrgð. Aðalmunurinn væri sá, að þegar um samábyrgð væri að ræða, þá væri upphæðin, sem ábyrgst væri, svo ótiltekin, að menn vissu eiginlega ekki, hvað þeir væru að takast á hendur. Um sjálfsskuldarábyrgð væri öðru máli að gegna, því að þá vissu menn ávalt, hver upphæðin væri. Þetta er að sumu leyti rjett, en ekki að öllu leyti. Því að því er nú svo farið með sjálfsskuldarábyrgð, að það eru oft, ef til vill, fleiri en einn, sem takast hana á hendur, og getur þá oft svo farið, að einn eða fleiri heltist úr lestinni, svo að ábyrgðin hvíli ef til vill að lokum aðeins á einum manni. Og það virðist því augljóst, að mönnum getur verið það ómögulegt, jafnvel þótt um sjálfskuldarábyrgð sje að ræða, að gera sjer grein fyrir því í upphafi, hve stór ábyrgðin sje í raun og veru og hve mikla áhættu þeir taki á sig með skuldbindingunni. En hv. 3. landsk. og hv. 1. þm. G.-K. virðist vera það nokkuð óljóst, hvernig samábyrgð er varið. En hverjum einasta manni, sem er í samvinnufjelagi, er það fyllilega ljóst, hve mikla ábyrgð hann tekur á sig með samábyrgðarskuldbindingunni.

Þegar um samábyrgðir er að ræða, þá er það vanalega innan sjerstakrar deildar, svo að það er hægt að vita það fyrirfram, hvar ábyrgðarþunginn muni lenda, ef illa fer.(BK: Ekki eftir lögunum). Þetta var óþarft innskot hjá hv. 1. þm. G.-K., því jeg álít altaf hyggilegra að halda sig við veruleikann en lagabókstaf, sem ekki getur ætíð átt við. Ef t. d. 40–50 þúsund landsmanna gengju í samvinnufjelag, þar sem samábyrgðarupphæðin væri viss, segjum t. d. 2–3 milj. kr., þá get jeg ekki sjeð, að hægt sje að nota það sem grýlu, að þetta væri slíkt skaðræði, að það gæti orðið til þess að eyðileggja framtíð þeirra. Um leið vil jeg minna hv. þm. á það, að það er til önnur samábyrgð, þar sem við erum allir ábyrgir, sem sje þjóðfjelagssamábyrgðin. Og þótt heyrst hafi raddir um það, að áhlaðið sje hjá Samvinnufjelögunum, þá er þó samábyrgð þeirra hverfandi lítil í samanburði við þá samábyrgð. Jeg skal svo ekki fjölyrða meira um þetta, en það hafa, eins og oft vill verða, dregist önnur atriði inn í umræðurnar. Það hefir meðal annars verið rætt um gagnrýni í sambandi við opinberar stofnanir. Jeg verð að álíta, að ónákvæm og órjettmæt gagnrýni sje ekki síður skaðleg opinberum stofnunum en einstaklingafyrirtækjum. Gagnrýni er auðvitað sjálfsögð, nema því aðeins, að hún gangi í þá átt að villa almenningi sýn.

Hvað það atriði snertir, sem jeg og hv. 3. landsk. ræddum um, þá verð jeg að segja það, að mjer virðist sú aðferð, er hann viðhafði til þess að kynna landsmönnum útkomuna af rekstri tóbaksverslunarinnar, nefnilega að miða tilkostnaðinn við hagnað, geti tæpast hafa verið notuð í öðrum tilgangi en þeim, að láta tóbaksverslunina líta miður tryggilega út í augum landsmanna. Hitt er algild regla, að miða kostnaðarhlutföllin við verslunarveltuna. Þetta verð jeg að telja ónákvæmni í meðferð með tölur hjá hv. 3. landsk. Sama ónákvæmni kom í ljós í ummælum um steinolíuverslunina í greinum, sem birtust í blaðinu „Verði“ í sumar. Jeg fullyrði ekki, að þær greinar sjeu skrifaðar af hv. 3. landsk., en jeg geri ráð fyrir, að þær hafi ekki birtst þar án hans vitundar og vilja. Jeg er ekki svo elskur að „Verði“, að jeg beri hann á mjer að jafnaði, en jeg býst við, að það verði möguleikar á því að athuga það mál nánar síðar. Þar er, sem sagt, sama aðferðin notuð, en þó freklegar fært úr lagi.

Þá hefir verið gert mikið að því að koma þeim skilningi inn hjá landsmönnum, að verslunarfyrirtæki ríkisins fari svo ógætilega með lánveitingar, að landinu geti stafað hætta af. Þetta kom berlega í ljós í þáltill., sem fram kom á síðasta þingi, og er því óþarfi að fjölyrða meir um það. En jeg mun ekki bera kinnroða fyrir niðurstöðu þess máls, þegar öll kurl koma til grafar. Jeg vil halda því fram, að eftir þau 10 ár, sem jeg hefi verið riðinn við landsverslunina, þá sje ekki hægt að benda á eina einustu stofnun í landinu, sem geti sýnt eins góða afkomu í þeim efnum, þegar tekið er tillit til þess, hve veltan er stór. Og ef það fje, sem kann að hafa tapast, er borið saman við samskonar tap banka og þessháttar stórfyrirtækja, þá er jeg alls óhræddur við þá niðurstöðu.

Jeg vil taka það fram, að allar dylgjur um þetta, sem fram hafa komið í þáltill. og annarsstaðar og reynt hefir verið að gera landsverslunina tortryggilega með, hafa við alls engin rök að styðjast.

Menn hafa verið með ádeilur á landsverslunina. Þeir hafa gert ósköpin öll úr því, hve illa innheimtust skuldir verslunarinnar. Þetta hefir miður góð áhrif á skuldunauta. Þeir vitna í þingskjölin og segja, að þar sjáist, að ekki sjeu lakari skil hjá þeim en öðrum. (JÞ: Á frv. að hindra þetta?). Hvað sem því líður, mætti ætla, að menn færu ekki á þingi með óþarfa fleipur, sem spillir fyrir stofnunum ríkisins. En um það hafa sumir þm. gert sig seka, en jeg vil ekki fullyrða, hvort þeir hafa gert það af illgirni eða fáfræði.