30.03.1928
Neðri deild: 61. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2860 í B-deild Alþingistíðinda. (2621)

33. mál, vernd atvinnufyrirtækja gegn óréttmætum prentuðum ummælum

Magnús Jónsson:

Jeg verð að játa, að jeg man ekki eftir, þegar þetta mál kom hjer í háttv. deild til 1. umr. Jeg er jafnvel hræddur um, að jeg hafi þá ekki verið við. En hvernig sem um það er, hefir sú orðið raunin á, að þessu máli hefir ekki verið vísað til nefndar, svo sem venja er til við 1. umr. Verð jeg að telja það í mesta máta óviðkunnanlegt, að þetta mál, sem er mjög athugavert og var rætt í háttv. Ed. af miklum hita, skuli vera af þessari hv. deild álitið svo ómerkilegt, að ekki þurfi að vísa því til nefndar. Þetta er merkilegt mál, lögfræðilegt vandamál, sem fylsta ástæða er til að athuga vandlega, áður en það er afgreitt. Jeg vildi því eindregið leggja til, að því verði vísað til nefndar nú við þessa umræðu.