30.03.1928
Neðri deild: 61. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2869 í B-deild Alþingistíðinda. (2631)
33. mál, vernd atvinnufyrirtækja gegn óréttmætum prentuðum ummælum
Hákon Kristófersson:
* Jeg verð að segja örfá orð, til þess — þótt mjer þyki það mjög raunalegt — að lýsa því yfir, að hæstv. forsrh. fór með alveg ósannar aðdróttanir, þar sem hann bar mjer og öðrum flokksmönnum mínum það á brýn, að við vildum tefja þetta mál. Jeg hefi alls ekki látið mjer detta í hug að tefja þetta mál á neinn hátt, og átti því ekki von á þessari hnútu úr þessari átt. Það lítur nærri svo út, sem hæstv. forsrh. hafi sjálfur einhverntíma átt þátt í því að tefja fyrir málum og kannist því við þetta. Annars væri það alveg óskiljanlegt. hvers vegna hann væri að drótta slíkri ósæmd að öðrum. Hæstv. forsrh. spurði að því, hvers vegna mál þetta hefði ekki verið sett til nefndar við 1. umr. — En það hefir nú verið upplýst, að það var af
því, að frv. var til 1. umr. þennan sjerstaka dag, þegar menn voru mjög annars hugar. — Jeg er ekki svo skyni skroppinn, að jeg viti það ekki fyrirfram, að við íhaldsmenn getum engin áhrif haft á úrslit þessa máls. Og þótt við hefðum einhverntíma verið haldnir þeirri heimsku að líta of stórt á getu okkar, þá hefir nú hæstv. forsrh. svo oft lýst því yfir hjer í hv. deild, að hann og hans flokkar hefðu yfirtökin, og líka sýnt það í verki, að hann getur komið því fram, er hann vill, að eftir þær yfirlýsingar gat okkur ekki komið til hugar, að við gætum tafið þetta. Það er rjett, að venjan er sú, að málum sje vísað til nefndar við fyrstu umræðu. En hitt má þó líka — og hefir komið fyrir —, að málum hefir verið vísað til nefndar við 2. umr. Hjer er því ekki um ókunnar leiðir að ræða.
Það var dálítið einkennilegt hjá hæstv. forsrh. Í fyrri ræðunni var það aðeins grunur um það, hvað mjer og öðrum gengi til að vísa þessu máli til nefndar. En í síðari ræðunni var komin vissa um það, hver tilgangurinn væri. Hvað fram hefir komið, skal jeg ekki segja. En allverulegt hefir það hlotið að vera, fyrst hæstv. forsrh. telur sjer sæmilegt að koma fram með slíkar aðdróttanir í minn garð og annara. (LH: Það tefur fyrir málinu að setja það í nefnd!). Það tefur fyrir málinu, segir hv. þm. En þetta er þá að minsta kosti alveg ný mótbára, að það eigi ekki að vísa máli til nefndar, vegna þess að það tefji málið. Og þótt þetta mál sje sett í nefnd, þá vil jeg spyrja, hvort hæstv. ráðh. hefir það ekki á sínu valdi, hvort málið gengur fram eða ekki. Það er því fyrirsláttur einn, og annað ekki, að segja, að málinu sje hætta búin, þótt því verði vísað til nefndar. Hæstv. forsrh. er búinn að sýna það, að hann getur komið því fram, er hann vill, hvort sem er nauðsynlegt mál eða ekki. Jeg skal ekkert dæma um hina lögfræðilegu hlið þessa máls; til þess brestur mig þekkingu. En jeg hygg þó, að ekki væri ver farið, að það færi í nefnd til athugunar. — Mín ummæli bygðust á því, að jeg hugði, að málið yrði betur athugað með því, en ekki var það ætlun mín að tefja fyrir því. Og jeg hygg, að slíkar getsakir komi ekki aðrir fram með en þeir, sem hafa áður leikið sama leik sjálfir.
(*Ræðuhandr. óyfirlesið.)