30.03.1928
Neðri deild: 61. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2877 í B-deild Alþingistíðinda. (2637)

33. mál, vernd atvinnufyrirtækja gegn óréttmætum prentuðum ummælum

Sigurður Eggerz:

Mjer finst þetta mál koma dálítið óþægilega við tilfinningar sumra hv. þdm., en það er ekki svo um mínar. Ákvæði 1. gr. get jeg samþ.; þau eru sjálfsögð í eðli sínu, og þó samskonar ákvæði sjeu í gildandi lögum, eins og lagadeild háskólans hefir tekið fram, þá er enginn skaði skeður, þó þetta sje tekið ótvírætt fram í lagagreininni. Um 2. gr. er það að segja, að hún er um mjög merkilegt atriði og mikilvægt, sem sje hvernig skaðabætur skuli dæmdar. Lagadeildin nefnir 3 leiðir, sem um sje að velja. Í fyrsta lagi að dæma bætur ávalt, er ummælum er svo háttað, að þau gætu hafa valdið tjóni. Í öðru lagi að dæma bætur aðeins fyrir tjón, sem sannað væri, og í þriðja lagi, ef líkur eru færðar á, að tjón hafi orðið. Mjer skilst nú, að það hafi æðimikla þýðingu, hver leiðin er farin, og mjer finst, að hv. deild ætti að gera sjer ljóst, hverja hún vill velja sem heppilegasta. Nú segir lagadeildin, að þriðja reglan sje í gildi í íslenskum lögum og jafnframt sú heppilegasta, en svo bætir hún við, að hún álíti, að í 2. gr. frv. felist sú regla. Nú stendur í stjfrv., að bætur skuli miðast við tjón það, er færðar eru sönnur á, að orðið hafi. Um þetta segir lagadeildin svo: „„Að færa sönnur á“ mundi væntanlega um þessi efni verða skilið svo af dómstólunum, að líkur nægðu, og greinin því engar breytingar gera á gildandi lögum“. Þá er spurningin: Er þetta rjett? Lagadeildin tekur ekki alveg af um það. Hún segir, að „væntanlega“ mundi þetta verða skilið svo. Það skiftir ekki litlu, hvaða leið farin er í þessu efni.

Það er annars langt frá, að jeg geti fengið mig til að tala með æsingu eða hrifningu um mál eins og þetta. Hinsvegar er þetta ekki svo einfalt. Háskólinn segir, að með því að samþ. þetta frv. sje aðeins valin sú leið, sem í gildi sje og farið sje eftir. Umsögn hans er þó ekki vafalaus, sbr. orðið „virðist“. Jeg álít nú, að það minsta sje, að Alþingi geri sjer fullljóst, inn á hvaða braut það vill fara í þessu máli. Jeg álít sjálfsagt að setja svona mál í nefnd. Það snertir alla einstaklinga og fjelög í landinu svo mjög, hvenær á að dæma skaðabætur fyrir órjettmæt ummæli. (LH: Það er ekki farið fram á nein sjerrjettindi). Jeg er ekki að tala um nein sjerrjettindi; jeg álít 1. gr. sjálfsagða, eða hefi að minsta kosti ekkert við hana að athuga. Það er 2. gr., sem ágreiningurinn er um. Og í henni er þungamiðja frv. Mjer finst því, að allir ættu að geta fallist á, að málið fari til nefndar. Mjer finst líka, að stj. gæti krafist þess, að málið yrði afgreitt fljótt. Hv. 1. þm. Skagf. lofaði fyrir sitt leyti fljótri afgreiðslu, og ætti ekki síður að mega vænta þess af stuðningsmönnum stj., að þeir gerðu sitt til þess.