30.03.1928
Neðri deild: 61. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2879 í B-deild Alþingistíðinda. (2638)
33. mál, vernd atvinnufyrirtækja gegn óréttmætum prentuðum ummælum
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Jeg get verið þakklátur hv. þm. Dal. fyrir að hann hefir talað með skynsamlegri gagnrýni um málið, eins og vera ber við 2. umr.
Þegar þetta mál lá fyrir Ed., sendi allshn. frv. til lagadeildar háskólans til umsagnar. Lagadeildin sendi svo nefndinni þetta álitsskjal, sem nú hefir verið sagt frá. Jeg sje ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um þá niðurstöðu lagadeildarinnar, að það sje sama að dæma bætur fyrir tjón, sem er sannað, og að dæma eftir líkum. Slíkt er vitanlega sú reginfirra, að jeg undrast, að lagakennararnir skuli koma fram með slíka kenningu. Við umr. í Ed. upplýsti jeg það, að allir þessir þrír merku menn hafa þá aðstöðu til þessa máls, að álit þeirra verður ekki að miklu haft. Þeir hafa nefnilega allir verið riðnir við dóma, sem hafa verið bygðir á mismunandi forsendum, dóma, sem gerðu nauðsynlegt að skapa fastan rjettargrundvöll í þessu efni. Dómar, sem þeir hafa verið riðnir við, hafa beinlínis verið tilefni þess, að slíkt frv. varð fram að koma.
Jeg spurði þá, meðal annars hv. þm. Seyðf., bæjarfógeta, hvort það væri ekki rjett, að prófessor Einar Arnórsson hefði gert fyrir hann undirrjettardómana í máli Garðars Gíslasonar gegn „Tímanum“ og í máli sambandsins gegn Birni Kristjánssyni. Hann svaraði því, að langt væri um liðið og myndi hann það ekki með vissu, en játaði þó á hóglátan hátt, svo sem hans er vandi, að svo myndi vera; gat þess ennfremur, að þessi prófessor hefði undirbúið fyrir sig ýmsa dóma, en auðvitað bæri hann ábyrgð á þeim. Auðvitað vjek prófessorinn sæti úr hæstarjetti, þegar dæma átti þar í málinu móti Birni Kristjánssyni, sem hann hafði dæmt í í undirrjetti.
Jeg vona, að hv. þm. Dal. sje það ljóst, að prófessor Einar Arnórsson hefir þá fortíð að baki sjer í þessu efni, að ekki verður tekið mikið tillit til hans álits. Hann hefir sem sje sýknað mann, sem hafði látið prenta þá ósönnustu, illgjörnustu og rógkendustu „kritik“, sem sögur fara af á Íslandi, um stærsta og þarfasta verslunarfyrirtæki landsins. Prófessorinn sýknar sökudólginn af því, að ekki væri um sannað tjón að ræða. En í máli hrossakaupmannsins og Morgunblaðseigandans Garðars Gíslasonar móti Tímanum, þar sem tjón var ekki heldur sannað, dæmdi hann 25 þús. kr. skaðabætur. Hinir tveir prófessorarnir voru varadómarar í hæstarjetti og dæmdu þar í öðru þessara mála, sem jeg nú hefi nefnt. Þeir eru þannig allir við riðnir þessa ósamrýmanlegu dóma. Jeg vona því, að hv. þdm. sjái, að lagadeildin er ekki vitnisbær um þetta, hvað þá alveg óyggjandi. Okkur er alveg óhætt að útskrifa þá, þeir eru úr leik í þessu máli, þó að þeir hinsvegar sjeu dugandi menn og vel að sjer um marga hluti, sem við koma þeirra daglega embættisstarfi við háskólann. Þessir þrír prófessorar, sem standa á bak við álit það, sem lagadeildin hefir sent allshn. Ed., taka það fyrst fram, sem er rjett, að um þrjár leiðir sje að velja. Aðalatriðið, sem hjer er um að ræða, er það, hvort á að heimta, fullar sannanir fyrir því, að tjón hafi átt sjer stað, eða að dæma eftir líkum. En svo dettur þessum lærðu mönnum í hug að misbjóða skynsemi þingsins og dómgreind með því að segja, að útkoman mundi verða sú sama, þó að þetta frv. verði samþ. Það mundi verða dæmt eftir líkum eftir sem áður, enda þótt það standi í frumvarpinu, eins og margoft hefir verið tekið fram, að bætur skuli aðeins dæmdar fyrir tjón, sem færðar eru sönnur á, að fram hafi komið. Það er hin mesta furða, að þessir menn skuli dirfast að koma fram fyrir þingið með annað eins og þetta.
Til þess að gera málið ljósara, skal jeg skýra nokkuð þá tvo dóma, sem jeg hefi minst á og mest hneykslunarhella hafa orðið í íslensku rjettarfari. Skal jeg þá fyrst nefna mál Sambandsins gegn Birni Kristjánssyni. Sambandið er stærsta verslunarfyrirtæki landsins. Í því eru um 8000 fjelagar og það verslar með nauðsynjavöru hjer um bil 40% af landsmönnum. — Björn Kristjánsson skrifaði og gaf út tvo bæklinga, þar sem hann hjelt því fram, að Sambandið væri stofnað í slæmum tilgangi og að vondir menn stæðu að því. Það væri ekki lánstraustshæft í bönkum og mundi ekki leysa sínar skuldbindingar. Þetta var tekið frá öllum hliðum, uppruni fjelagsskaparins, tilgangur hans, alt átti þetta að vera ilt og skaðlegt. Það átti að vera skaðlegt að vera í þessu fjelagi og hættulegt að lána því. Mjer er óhætt að fullyrða, að hjer á landi hefir aldrei komið fram jafnlánstraustsdrepandi „kritik“ á nokkru fyrirtæki og þessi árás hv. 1. þm. G.-K. á samvinnufjelögin var. Þó var hann sýknaður, bæði í undirrjetti og hæstarjetti, af skaðabótakröfu Sambandsins; aðeins voru nokkur ummælanna dæmd dauð og ómerk. Því var haldið fram, að ummælin hefðu ekki valdið tjóni, er sannað væri. Um tilganginn gat enginn efast. Það kom líka beint fram við rekstur málsins fyrir hæstarjetti, hjá málafærslumanni verjandans, að hann reyndi ekki að afsaka hina illgjörnu „kritik“ með því að draga úr henni, heldur vildi telja hana afsakanlega vegna þess, að Samband kaupfjelaganna væri nokkurskonar opinber stofnun og hún yrði þess vegna að þola harðari „kritik“ en hliðstæð einkafyrirtæki. Til viðbótar því, sem jeg nú hefi sagt, skal þess getið, að það kom fram í Ed., að háttv. þm. Seyðf., sem ber ábyrgð á undirrjettardóminum í þessu umrædda máli, lítur svo á, að þessi fjelagsskapur eigi að þola öðruvísi gagnrýni en einkafyrirtæki. Hjer liggur þá einnig fyrir játning frá þeim dómara, sem flesta dóma dæmir á Íslandi, um, að frá hans sjónarmiði eigi að gera mun í þessu efni samkvæmt gildandi lögum. Nú skulum við gera ráð fyrir því, að hv. þm. Barð. t. d. reki hjer verslun fyrir eiginn reikning, en jeg sje kaupfjelagsstjóri úti á landi, og að hv. þm. Dal. finni ástæðu til þess að gagnrýna opinberlega starfsemi beggja þessara fyrirtækja. Jeg hugsa mjer, að hann standi utan við þau bæði. Þau eru bæði sjálfstæð fyrirtæki út af fyrir sig og sjálfstæðar persónur að lögum. Mín meining er þá sú, ef þau verða fyrir tjóni vegna órjettmætra ummæla, að þau eigi bæði að hafa jafnan rjett til skaðabóta. Það sýnist nokkuð hart, ef hver óvalinn dóni á að hafa leyfi til að vaða inn í lokaðan fjelagsskap og spilla þar öllu, án þess að hægt sje að krefjast bóta fyrir. Þessu má vitanlega ekki blanda saman við rjett fjelagsmanns á fjelagsfundi til að gagnrýna starfsemi síns eigin fjelags.
Jeg hefi tekið þetta fram til að benda á, að það verður lítið úr áliti lagadeildarinnar í þessu máli, bæði vegna aðstöðu prófessoranna, en þó einkum af því, að það, sem þeir halda fram, er sannanlega alrangt. Jeg hefi líka bent á, að lagamenn eru alls ekki á einu máli um þetta. Jeg skal nefna enn eitt mál, er sýnir, hversu mjög alt er á reiki í þessu efni. Það var sagt í blaði um mann, að hann væri ekki hæfur til að vera kaupfjelagsstjóri. Honum voru í undirrjetti dæmdar 2000 kr. skaðabætur. Málið fór svo til hæstarjettar og þar var blaðið sýknað. Hvernig á nú að skilja þetta, að undirrjetturinn getur litið gagnólíkt á málið í samanburði við hæstarjett? Hjer sýnist vanta ákveðna grundvallarreglu til að fara eftir.
Svo kemur annað mál, sem snýst um það, hvort það sje rjett eða rangt að reka markaðshross hingað suður úr Norðurlandi að vetrarlagi. Þetta hafði verið gert af einum kaupmanni hjer í bænum, og einn ráðunautur Búnaðarfjelags Íslands, einlægur dýravinur, hafði átalið það í „Tímanum“. Kaupmaðurinn fer í mál og krefst skaðabóta, vegna þess að ummælin hefðu skaðað hrossaverslun sína. Það sannast bæði fyrir undir- og yfirrjetti, að ekkert tjón var um að ræða. Markaðurinn var þetta ár óhagstæður og varð tap á hrossaversluninni hjá öllum, sem við hana fengust, og því meira, sem þeir fengu fleiri hross. Það var því tvent sannað, að allir höfðu skaðast á hrossaverslun þetta ár og að kaupmaður þessi hefði þar að auki sparað fje hið umrædda ár, ef hann hefði fengið sem fæst hross. Það lá þannig ljós sönnun fyrir um það, að hjer var ekkert tilefni til skaðabóta vegna skaða. Þó dæmir Einar Arnórsson á ábyrgð bæjarfógetans hjer ritstjóra Tímans til að greiða kaupmanninum 25 þús. kr. skaðabætur. Hæstirjettur, sem þó gengur inn á rök verjanda um, að ekkert tjón hafi átt sjer stað, felst einnig á skaðabótakröfuna, en lækkar hana niður í 5 þús. kr. Samræmið í dómunum er þá ekki meira en það, að í máli Sambandsins gegn Birni Kristjánssyni eru engar bætur dæmdar fyrir hin verstu traustspillandi ummæli um hið stærsta og þjóðnýtasta fyrirtæki á Íslandi, af því að ekki sje sannað, að ummælin hafi valdið tjóni, en í hinu tilfellinu, máli Garðars Gíslasonar gegn ritstjóra Tímans, þar sem um var að ræða deilu, sprotna af mannúðarmáli, og greinarnar allar eða nálega allar aðsendar, og þar sem í hlut átti firma, sem hefir enga fjelagslega þýðingu, og auk þess firma, sem hafði legið í dái að mestu nokkur missiri á kreppuárunum. En þetta firma fær skaðabætur bæði í undirrjetti og hæstarjetti, ró að sannað sje, að ekkert tjón hafi verið um að ræða, er ummælin hefðu getað valdið. Getur nokkuð betur sýnt, að rjettan grundvöll vantar í þessu efni?
Þessir tveir hæstarjettardómar eru alveg gagnstæðir. Í fyrra tilfellinu eru skaðabætur ekki dæmdar, af því að ekki er talið sannað, að hlutaðeigandi hafi orðið fyrir skaða. Í síðara tilfellinu eru dæmdar skaðabætur eftir líkum, þótt skaðinn sje alls ekki sannaður, eða öllu heldur beinlínis sannað, að ekkert tjón átti sjer stað. Og nú vil jeg spyrja fyrverandi sýslumann, bæjarfógeta og ráðherra, hv. þm. Dal.: Er ekki mögulegt, að það rjettarhneyksli, sem kemur fyrir einu sinni, komi fyrir oftar? Og þegar sami maðurinn dæmir báða dómana í undirrjetti, er þá ekki full ástæða til, að mönnum komi til hugar, að hjer þurfi eitthvað að gera til þess að reisa rönd við, að tvennskonar rjettlæti gildi í landinu ?
Þessir tveir dómar eru blettir á íslensku rjettarfari. Þeir eru það, sem ein frændþjóð okkar kallar „Justitsmord“. Nú liggur fyrir Alþingi að skera úr því, hvort það vilji láta aftur fremja slík rjettarverk, og þeir, sem vilja fella þetta frv., vilja þar með láta í ljós, að þeir vilji, að hægt sje að níðast þannig á borgurum landsins í skjóli óglöggra laga. Jeg ber það traust til háttv. þm. Dal., að þegar til atkvæða kemur, muni hann greiða frv. þessu atkv. sitt.
Jafnvel þótt við, sem nú eigum sæti á Alþingi, sjáum ekki ástæðu til að gera sjerstaklega erfiðan hlut þeirra manna, sem að þessum mistökum hafa staðið, þá má ekki gleyma því, að þessi mál til samans eru mesta sorgarefni þeirra, er kynna vilja sjer rjettarsögu síðustu ára. En með samþ. þessa frv. er byrgður sá brunnur, sem barnið er búið að detta ofan í oftar en einu sinni.