30.03.1928
Neðri deild: 61. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2889 í B-deild Alþingistíðinda. (2641)

33. mál, vernd atvinnufyrirtækja gegn óréttmætum prentuðum ummælum

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Það fór að líkum, að hv. þm. Dal. sá, að best myndi að leiða sem fæst vitni í máli þessu, sökum þeirrar aðstöðu, er lagaprófessorarnir hafa. Þessir dómar, er jeg hefi bent á, eru gagnstæðir hvor öðrum, og það eina, sem rjettlætt gæti dómarana, væri það, að lögin væru óljós í þessu efni. Að öðrum kosti verður að líta svo á, að dómararnir hafi dæmt rangt a. m. k. í öðru málinu, og það af ásettu ráði; en fyrir því vil jeg ekki gera ráð. Engir ættu því frekar að óska þess, að þessi ákvæði verði skýrt mörkuð í lögunum, en einmitt prófessorar háskólans. Jeg þarf ekki að benda hv. þm. Dal. á það, hve ástandið er hörmulegt, þegar lagamenn háskólans halda, að það sje sama að dæma eftir sönnunum eða eftir líkum. En sem betur fer, hafa allir óviðkomandi menn, er jeg þekki, skilið frv. á einn veg og viðurkenna nauðsyn þess fyrir íslenskt rjettarfar.

Jeg svara fyrirspurn hv. þm. á þann veg, að jeg vil láta lögfesta þá stefnu, sem hæstirjettur hafði í Sambandsmálinu. Jeg vil, að aldrei framar verði í slíkum efnum dæmt eftir geðþótta eða líkum. Rökin ein og ákveðnar sannanir eiga að gilda. Stundum kunna þeir seku að sleppa of auðveldlega, ef miðað er við tilgang, eins og flestir munu telja, að átt hafi sjer stað um Björn Kristjánsson. En saklausir verða þá heldur ekki dæmdir til ranglátra bóta. Og eftir gömlum og gildum rjettarfarsvenjum er það nauðsynlegast af öllu, að sá saklausi sje ekki dæmdur sekur.

En þegar svo aftur hjeraðsdómari og hæstirjettur komast í ósamræmi innbyrðis, þannig að í eitt skifti er dæmt í 25 þús. kr. sekt og í annað skifti í 5 þús. kr. í sama máli, í öðru sinni í undirrjetti 2000 kr. sekt, en sýknað í hæstarjetti, þá er mönnum ljóst, að vantandi rjettargrundvöllur leiðir yfir í fullkomin rjettarspjöll fyrir alþýðu manna og fullkomna óvissu fyrir dómarana.