04.04.1928
Efri deild: 65. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1178 í B-deild Alþingistíðinda. (265)
1. mál, fjárlög 1929
Ingibjörg H. Bjarnason:
Jeg á tvær brtt. á þskj. 695 og skal reyna að vera ekki langorð og taka ekki langan tíma, þó báðar þessar brtt. sjeu allvíðtækar. Sú fyrri er við 15. gr. 15, nýr liður og hljóðar svo: Til Bandalags kvenna, styrkur til þess að rita sögu eða drög til sögu ísl. kvenna, sem ætlast er til, að komi út árið 1930. Styrkbeiðni þessi er að upphæð 2500 kr., og til vara 2000.
Þá vildi jeg áður en jeg kem nánar inn á þetta, gera dálitla grein fyrir því sambandsfjelagi, er hjer sækir um styrk. Bandalag kvenna er samband ýmsra kvenfjelaga hjer á landi og var stofnað 1917. Það er með sama sniði og svokölluð kvennaráð, er alls munu vera til í 40 löndum. Þessi fjelög eru algerlega ópólitísk, en vinna að allskonar menningarmálum. Bandalag íslenskra kvenna er í alheimsbandalagi kvenna og er þannig einskonar milliliður milli erlendra og íslenskra kvenna. Eru öll lönd, sem í því bandalagi eru, skyld til þess að gefa skýrslu um allskonar hagfræðileg atriði og mentamál og fleira. Vinnur þetta bandalag þannig mjög mikið að því að auka kynningu milli þjóðanna, og hefir þetta náttúrlega því meiri þýðingu, því minni sem þjóðin er, því venjulega er það svo, að því smærri sem ein þjóð er, því óþektari er hún. Íslendingar eru minsta þjóðin í þessu sambandi, en samt hafa fulltrúar ísl. kvenna oft sótt þessi þing. Hafa þeir fulltrúar, sem vitanlega hafa altaf verið konur, unnið mikið að því og þar orðið talsvert ágengt að útrýma þeirri vanþekkingu, sem ríkir víða erlendis að því er Ísland snertir. Halda margir, að hjer sje ekkert nema ís og kuldi og að íbúarnir sjeu skrælingjar. Er ekki vafi á því, að í hvert skifti sem ísl. konur hafa sótt slíka fundi, hefir framkoma þeirra þar bæði orðið þeim og þjóðinni til sóma og gagns. Þá hefi jeg skýrt nokkuð frá því, hvað þetta Bandalag kvenna gerir út á við, og skal jeg nú snúa mjer að innanlands starfsemi þess. Hjer hefir það haft ýmislegt gagnlegt með höndum. T. d. fjekk það á stríðsárunum margar hjálparbeiðnir, og varð það við þeim eftir því sem það gat. Og mjer er kunnugt um það, þó jeg sje ekki í stjórn þess, að Bandalag kvenna sendi þá til dæmis 16 þús. kr. til Austurríkis, til fátækra barna þar. Ennfremur leitaði það samskota til hjálparstarfsemi þeirrar, er nefnist „Save the Children“. Margt fleira hefir það gert, er snertir aðrar þjóðir og hefir orðið því til sóma. 1924 hjelt Bandalag kvenna iðnsýningu hjer í Reykjavík. Hjálparstarfsemi hefir það og mjög lagt stund á hjer í Reykjavík. Sjerstaklega vann það mjög að henni 1920, er svo marga hjer vantaði bæði föt og mat. Nú sem stendur er Bandalag kvenna að vinna að aðalstarfi sínu, því að koma upp Hallveigarstöðum, og væntir fjelagið þess, að þeir verði komnir upp 1930. Á þetta hús að vera gisti og griðastaður fyrir konur af öllu landinu. Nú langar Bandalag kvenna í sambandi við hátíðina 1930 að gefa út bók, sem fjalli um sögu ísl. kvenna, og sótti um 5000 kr. styrk í því skyni til fjvn. Nd., en fjekk enga áheyrn. Jeg hefi nú, eftir þeirri þekkingu, sem jeg hefi á getu og tekjum ríkissjóðs, ekki treyst mjer til þess að fara fram á svo háa upphæð, heldur aðeins helming þess, sem sótt var um, eða 2500 kr.
Eins og sagt er í umsókninni frá stjórn Bandalagsins, þá er svo til ætlast, að þessi bók verði mjög ábyggilegt heimildarrit, og er ætlunin að leita aðstoðar þeirra manna, sem óskeikulastir eru í meðferð þeirra heimilda, er hjer um ræðir. Síðar gæti svo þetta rit orðið liður í þeirri sögu, því heildarverki, sem innan skamms mun verða samið, en sem nú er svo mjög í brotum. Og eins og segir í umsókninni, á þetta að verða sá andlegi skerfur, sem ísl. konur leggja til alþingishátíðarinnar 1930. Riti þessu verður, eins og tekið er fram í umsókninni, aðallega skift í þrent. Í fyrsta lagi verður þar tekið fyrir: Rjettarstaða kvenna. Í öðru lagi: Heimilishættir, vinnubrögð og annað menningarsögulegs efnis. Og í þriðja lagi: Persónulýsingar ýmsra þeirra kvenna, er skarað hafa fram úr fjöldanum. En eins og gefur að skilja, þá verður það fleira, sem kemur til greina, því ætlast er til, að þessi saga nái alt frá landnámstíð til vorra daga. Slík rit sem þetta verður því ekki samið án mikillar rannsóknar.
Mjer er persónulega kunnugt um, að margar konur standa bak við þetta og styðja það með áhuga og dugnaði. Hafa þær þegar trygt sjer þann manninn, sem hæfastur er til þess að skrifa þann hlutann, er kemur til þess að fjalla um rjettarstöðuna. En Bandalag kvenna hefir ekki nægan höfuðstól, og hefir því snúið sjer til Alþingis. Eins og jeg hefi þegar tekið fram, fjekk það ekki áheyrn hjá fjvn., og því flyt jeg brtt. um lítinn styrk handa því. Styrk, sem að vísu er mjög ófullnægjandi, en þó betri en enginn. Í þessu sambandi mætti minna á það, að Íslendingar, sem þó hafa svo mikið orð á sjer sem söguþjóð, eiga enga heildarsögu. Öll sagnaritun hennar er í molum. Hjer á að gera tilraun til þess að rita heildarsögu, og verður það sá skerfur, er konur leggja til ísl. sagnaritunar. Mjer finst þessi hugmynd góð og vona, að hv. deild sjái sjer fært að samþ. þessa brtt. mína.
Þá skal jeg snúa mjer að hinni brtt minni, sem er við 15. gr. 16 og er umsókn frá magister Birni K. Þórólfs syni um styrk, að upphæð 2500 kr., til þess að semja skrá yfir skjöl, er Ísland varða og geymd eru í skjalasöfnum í Kaupmannahöfn. Umsókn þessi er dags. 2. ágúst síðastl. og eru 2 fylgiskjöl með henni. Eru það meðmæli frá dr. Sigfúsi Blöndal og dr. Hannesi Þorsteinssyni, og nýverið hafa mjer borist meðmæli frá próf. Páli E. Ólasyni. Þegar hv. fjvn. Ed. treysti sjer ekki til þess að mæla með þessari styrkbeiðni, sem þó engin styrkbeiðni er, því hjer er mikil vinna boðin fram fyrir litla borgun og um það verk að ræða, sem ekki má fresta, þá tók jeg að mjer að flytja þessa brtt. Jeg þekki þennan mann lítið sem ekkert, en mjer hefir orðið það ljóst af ummælum þessara þriggja merku manna, að hjer er um ákaflega þýðingarmikið verk að ræða og að þessi maður muni fullkomlega vera starfi þessu vaxinn. Hann er líka þegar búinn að vinna nokkuð í þarfir landsins, eins og jeg mun koma að síðar. Mjer finst, þegar svo er litið á þetta mál sem jeg geri, að hjer sje ekki um styrk að ræða, heldur lítilfjörlega borgun fyrir verk, sem þessi maður er þegar byrjaður á. Og jeg býst við, að allir hv. þdm. geti orðið mjer samdóma um það, að rjett sje að verða við þessari styrkbeiðni og nota þannig tækifærið til þess að fá þetta verk unnið fyrir litla borgun. Eins og jeg gat um, legg jeg mest upp úr því, sem þeir hafa sagt, er með þessu mæla, því sjálf hefi jeg ekki sjerþekkingu í þessum efnum. Ummæli þeirra lýsa þessum manni svo, að hann sje vel til þessa verks fallinn og hafi þegar unnið meira en nokkur annar að því að skrásetja þessi skjöl, síðan Jóns Sigurðssonar misti við. En eins og kunnugt er, vann hann það þrekvirki að skrásetja öll skjöl, er Ísland varða í brjefabókum konungs og þeirra stjórnardeilda, er í hvert sinn fóru með afgreiðslu Íslandsmála frá 1514–1848. Síðan hefir ekki neinn unnið að þessu, svo vitanlegt sje. Skrá sú, er Jón Sigurðsson gerði, er í 10 bindum; er hún nú eign ríkisins en geymd í landsbókasafninu.
Með rjettu kallar próf. Páll E. Ólason þetta verk Jóns Sigurðssonar þrekvirki. Vann hann þetta á ljettasta skeiði aldurs síns í hjáverkum, því þá hafði hann mörgum öðrum störfum að gegna í þágu lands og þjóðar, þó ekki ætti hann hjer heima. Nú er það ljóst, að bráðlega þarf að halda áfram með þessa skrásetningu, því óðum nálgast, að farið verði að rita ítarlega Íslandssögu. Má segja, að þegar sje að nokkru leyti byrjað á því, og á jeg þar við alþingissöguna, sem veitt hefir verið fje til mörg undanfarandi ár. Líka þarf að taka tillit til þess, að hjer er um það að ræða að skrásetja gögn, sem því erfiðara er að skrá, því lengur sem það dregst. Hinsvegar er það vitanlegt, að skjölin sjálf fást aldrei hingað, því þau eru svo fljettuð inn í sögu Dana frá 15. öld og alt til þess er íslenska stjórnardeildin var stofnuð 1848. Fyrir því verður nauðsynin á skráningu þeirra enn meiri.
Jeg ætla nú að geyma mjer um stund það, sem jeg hefi um þetta að segja frá eigin brjósti, en með leyfi hæstv. forseta ætla jeg að lesa upp þau meðmæli, er fylgja umsókn Björns K. Þórólfssonar. Byrja jeg þá á meðmælum dr. Hannesar Þorsteinssonar, og eru þau á þessa leið:
„Herra magister Björn K. Þórólfsson er mjer að góðu kunnur sem aðstoðarmaður minn við aðgreiningu íslenskra skjala frá dönskum í Ríkisskjalasafni Dana í fyrra vor. Er hann orðinn manna kunnugastur því mikla safni og er mjög gætinn og athugull um öll slík efni, svo að jeg tel hann mjög vel færan um að gera skrá þá, er hann nú sækir um styrk til að semja og jeg verð að telja mjög þýðingarmikla fyrir sögu Íslands, einkum í verslunarefnum. Við slíka rannsókn gætu og komið í leitirnar ýms skjöl, sem við ættum heimtingu á að fá hingað send samkv. samningum um skjalaafhendingu til Íslands, og yrðu þau þá væntanlega tekin frá. Ennfremur má geta þess, að Ráðhússkjalasafnið danska (Raadhusarkivet) hefir hingað til ekkert verið rannsakað af íslenskum mönnum, og má vænta, að þar sje ýmislegt markvert að finna um íslensk efni. Jeg leyfi mjer því að mæla hið besta með því, að herra Birni K. Þórólfssyni verði veittur styrkur sá, er hann sækir um, og mætti þá gjarnan setja honum þau skilyrði, er hann sjálfur hefir stungið upp á, að hann ljúki skránni á 3 árum, sem jeg efast ekki um, að hann mundi geta leyst af hendi.
Reykjavík, 12. ágúst 1927.
Virðingarfyllst.
Hannes Þorsteinsson“.
Þá kem jeg að umsögn dr. Sigfúsar Blöndals, en hún er nokkuð sama efnis og þessi, sem jeg nú las upp, og ætla jeg því ekki að lesa hana, heldur snúa mjer að þeirri nýjustu, sem er frá dr. Páli E. Ólasyni. Ætla jeg, að fengnu leyfi hæstv. forseta, að lesa hana upp:
„Það er alkunnugt, að ríkisskjalasafn Dana er einnig um langan tíma ríkisskjalasafn Íslendinga, það er tekur til allrar hinnar ytri stjórngæslu af hálfu konunga og stjórnardeilda þeirra. Verður og svo framvegis, að því leyti sem varðar brjef konunga og stjórndeildanna, með því að slíkum brjefum um Ísland er komið fyrir inn í brjefabókum í bendu með öðrum löndum eða landshlutum, er lutu Danakonuhgi. Afhending slíkra skjala getur eftir eðli þeirra aldrei komið til mála; upp úr heilum bókum er ekki hægt að rífa blöð á víð og dreif. Var þessi tilhögun höfð frá elstu tímum til 1848. Er þarflaust hjer, enda myndi og taka of langt rúm, að gera grein fyrir því, hvar Íslandsmálum var holað niður til afgreiðslu á ýmsum tímum. En 1848 var hin íslenska stjórnardeild stofnuð í Kaupmannahöfn, og þar með var afgreiðsla íslenskra mála komin á einn stað og óskift, sem kunnugt er. Hitt mun ekki eins kunnugt, að Jón Sigurðsson vann það afrek snemma æfi sinnar að skrásetja öll skjöl, er Ísland varða í brjefabókum konungs og þeirra stjórnardeilda, er í hvert sinn fóru með afgreiðslu Íslandsmála, frá elstu tímum allar götur fram til þess, er stofnuð var hin íslenska stjórnardeild (1514–1848), að svo miklu leyti, sem þær voru þá komnar í ríkisskjalasafn Dana, sem þá var kallað leyndarskjalasafn konungs, eða aðgengilegar þar“.
Hjer vil jeg leyfa mjer að taka fram, að prófessorinn telur vafasamt, að öll skjöl, er snerta Ísland í þessu sambandi, hafi verið komin inn í þetta heildarsafn, er Jón Sigurðsson gerði skrá sína. Og er það mjög sennilegt, eða jafnvel sannanlegt, að þau hafa ekki öll verið komin fram.
„Þessi skrá Jóns er 10 bindi, og er hún varðveitt í handritasafni hans í landsbókasafni (J.S. 110–119, 4to). Þarf vart að taka það fram, að á þeim skrám er sá snildarbragur, sem jafnan einkennir verk þessa manns. Eru þær til hins mesta ljettis öllum þeim, sem nota kunna eða sinna þurfa utanríkissögu Íslendinga allan þenna tíma, þar með stjórngæslu allri utan að. Er þar engra umbóta vant. En eftir að Stjórnardeildin íslenska var stofnuð, er auðgengið að slíkum skjölum eftir skrám, dagbókum og brjefabókum hennar.
Vitanlegt er það, að til eru í söfnum utanlands margvísleg skjöl fyrri tíma, þau er varða Ísland, jafnvel frá stjórngæsluvaldi landsins eða tilteknum greinum þess, er eigi voru komin í leyndarskjalasafn konungs eða eigi aðgengileg, er Jón Sigurðsson samdi skrár sínar, sum alveg nýkomin þangað, sum geymd annarsstaðar, t. d. í bæjarskjalasafni Kaupmannahafnar. Lúta þau einkum að verslunarstjórn Íslands o. fl., mestmegnis á 18. öld.
Nú hefir magister Björn K. Þórólfsson gert fjárveitingarvaldi landsins kost á því að ljá vinnu sína í skrásetning þessara skjala. Hefir hann fengið hjeðan úr Landsbókasafni skrár Jóns Sigurðssonar sjer til leiðbeiningar í þessu efni. Jeg undirritaður get nú ekki sagt um það að sinni, hvað langan tíma taki skrásetning þeirra skjala, sem skrár Jóns Sigurðssonar ná ekki yfir; myndi það og mjög komið undir vinnulagi og hagsýni þess, sem verkið ynni. En hitt veit jeg, að magister Björn K. Þórólfsson er svo samviskusamur maður, að hann myndi ekki teygja verkið yfir lengri tíma en þörf er á. Mjer er og kunnugt um það, að hann er maður trúr í verki, dyggur og vandvirkur. Á þetta ofan hefir hann og kynst talsvert skjölum og skjalasöfnum fyrri alda, með því að hann hefir fyrir hönd þjóðskjalavarðarins hjer verið að verki í framtali og viðtöku skjala, sem Íslendingum eru afhent úr ríkisskjalasafni Dana til þjóðskjalasafnsins hjer; fer þjóðskjalavörður lofsamlegum orðum um það, hversu mag. Björn hafi leyst af hendi það verk.
Eftir því sem nú hefir verið lýst, verð jeg þá að telja það vel ráðið, að mag. Birni K. Þórólfssyni sje falið þetta verk, og yrði þá jafnframt gert að skyldu af afhenda skrá sína Landsbókasafni; myndi hún verða hentugur viðauki við skrár Jóns Sigurðssonar, sem þar eru fyrir.
Reykjavík, 3. apr. 1928.
Páll Eggert Ólason“.
Jeg þykist þá hafa fært þær sönnur á mál mitt, að hjer sje frekar að ræða um að taka hentugu tilboði heldur en að veita styrk eða ölmusu. Og þegar þar við bætist, að allir þeir, sem hafa nokkuð lagt þessu máli lið, eru sammála um það, að maðurinn er vandvirkur, athugull í besta lagi og fróður á söfnum, síst af öllu ágengur, þá tel jeg, að brjef þau og meðmæli, sem jeg hefi lesið upp, ættu að vera næg sönnun fyrir því, að þessi styrkbeiðni, sem jeg hefi stilt svo mjög í hóf, verði samþ. Sú upphæð er því miður lægri en styrkbeiðandi fór fram á. Enda sá jeg það eftir á, að þessar 1500 krónur voru blátt áfram, mjer liggur við að segja smánarlega lág upphæð, þegar er að ræða um að borga vel unnið vandaverk.