25.01.1928
Efri deild: 6. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2903 í B-deild Alþingistíðinda. (2655)

35. mál, lokunartími sölubúða

Jón Þorláksson:

Þar sem hv. flm. gerir það að tillögu sinni, að frv. þessu verði vísað til nefndar, gæti jeg í raun og veru beðið með að segja það, sem jeg hefi að segja um þetta mál. Mjer þykir þó rjett að láta koma fram nú þegar, af hverju andstaðan gegn frv. hefir stafað, þar sem hv. flm. gat ekkert um þá hlið málsins.

Svo stendur á frv. þessu, að fjelagsskapur þeirra manna, sem ekki komast inn undir ákvæðin um lokunartíma sölubúða, hafði gert samþykt um lokunartíma á sínum vinnustofum. Þetta var þeim auðvitað alveg frjálst að gera. En utan þessa fjelagsskapar voru einn eða tveir menn, sem enga starfsmenn höfðu í þjónustu sinni, heldur tóku á móti viðskiftavinum sínum í heimahúsum á kvöldin og rökuðu þá þar. Þessu hjeldu þeir vitanlega áfram eftir að hinir höfðu gert samþykt um lokunartíma á vinnustofunum. Þá urðu þeir óánægðir og fanst með þessu vera stofnað til óeðlilegrar samkepni. Hjer er því um það að ræða, hvort rjett sje að ganga svo nærri atvinnufrelsi manna, að þeim sje blátt áfram meinað að vinna heiðarleg verk í heimahúsum sínum. Það hefir þingið ekki viljað fallast á, heldur hefir því fundist frv. þetta fara fram á meiri skerðing á persónulegu frelsi manna en rjettmætt sje. Jeg skal ekkert hafa á móti því, að frv. fari til nefndar. Vera má, að nefndin geti stungið upp á einhverri málamiðlun, sem tryggi það, að ekki sje gengið of nærri atvinnufrelsi manna.