30.01.1928
Efri deild: 9. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2939 í B-deild Alþingistíðinda. (2718)

52. mál, löggilding verslunarstaða

Forseti (GÓ):

Það er rjett, að það hefir ekki verið venja, að minsta kosti ekki nærri altaf, að slíkum málum væri vísað til nefnda, en það hafa þó komið fyrir atvik, sem benda á, að það væri rjettara, enda ætti það ekki að þurfa að tefja málið til muna.