04.04.1928
Efri deild: 65. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1219 í B-deild Alþingistíðinda. (273)

1. mál, fjárlög 1929

Ingvar Pálmason:

Jeg geri ráð fyrir, að jeg lengi ekki umr. mikið. Jeg er riðinn hjer við 2 brtt., sína á hvoru þingskjali, er meðflm. að annari með hv. þm. Ak. (EF), en fyrri flm. að hinni, ásamt hv. 5. landsk. (JBald). Sú brtt. er á þskj. 706, en mjer heyrðist nú vera það hljóð í bjöllunni, og kannske ekki að ástæðulausu, að nokkuð sje langt gengið með brtt. við þessa umr., og þó að jeg að öllu leyti telji þessa brtt., sem er hin fyrsta á þskj. 706 rjettmæta, þá kæri jeg mig ekki um að halda því til streitu, og lýsi hjer með yfir því, að jeg tek brtt. aftur. (BK: Jeg tek brtt. upp).