29.02.1928
Efri deild: 35. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2942 í B-deild Alþingistíðinda. (2734)

52. mál, löggilding verslunarstaða

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Þetta frv. er komið aftur frá Nd. og hefir tekið þeim breytingum, að bætt hefir verið inn í Vattarnesi í Suður-Múlasýslu. Allshn. hefir athugað frv. með þessum breytingum, en ekkert fundið við það að athuga, og leggur því til, að það verði samþ.