25.01.1928
Neðri deild: 6. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2943 í B-deild Alþingistíðinda. (2737)

36. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Flm. (Hjeðinn Valdimarsson):

Það er ekki nauðsynlegt að láta mörg orð fylgja þessu frv. úr garði. Það hefir verið borið fram á undanförnum þingum og haft allmikið fylgi, þó að ekki hafi dugað á meðan Íhaldsflokkurinn notaði afl sitt og aðstöðu til þess að fella það. Nú hefir við síðustu kosningar afstaða flokkanna breytst svo, að gera má ráð fyrir, að sá flokkur, sem hingað til hefir varnað því, að Hafnarfjörður næði rjetti sínum, sje brotinn svo á bak, að hann geti ekki lengur eytt þessu nauðsynjamáli.

Þetta frv. er að mestu leyti samhljóða þeim, sem áður hafa verið hjer á ferðinni. Aðeins er sú breyting gerð, að ef aukakosning fer fram í kjördæminu um einn þingmann á kjörtímabilinu, þá er ætlast til, að hann sje kosinn fyrir Hafnarfjörð og af hafnfirskum kjósendum einum. Að öðru leyti er ætlast til, að breyting þessi komi til framkvæmda við næstu kjördæmakosningar.

Að svo stöddu sje jeg ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri. Málið er þrautrætt og öllum rjettsýnum mönnum ljóst, að öll sanngirni mælir með því, að Hafnarfjörður fái sinn sjerstaka þingmann; vænti jeg því, að hv. deild taki vel í málið, og geri það að till. minni, að því verði vísað til hv. allshn., þegar umr. er lokið.