25.01.1928
Neðri deild: 6. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2953 í B-deild Alþingistíðinda. (2742)

36. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Flm. (Hjeðinn Valdimarsson):

Mjer finst hv. 2. þm. G.-K. ekki hafa mikið álit á þekkingu þingmanna á landsmálum, af því sem hann leyfir sjer að halda fram hjer í deildinni. Hann segir, að við það að Hafnarfjörður yrði áfram í kjördæminu, hjeldist þungamiðjan hjá sveitinni um kosningar til Alþingis. En það vita allir, að ef tekinn er Hafnarfjörður og bætt við Keflavík, — það þarf ekki að bæta við sjóþorpunum suður frá —, þá ráða þessir kaupstaðir kosningunni. Svo að kjördæmið með tveimur þingmönnum eins og nú er, er alls ekki sveitakjördæmi. Þetta er hverjum einasta þingmanni í þessari deild kunnugt, svo að hv. þm. þurfti ekki að bera þessa blekkingu fram.

Það er heldur ekki hægt að tala um, að flutningsmenn hafi grímu fyrir andliti, til þess að ná þingsæti úr höndum bænda, því að flestum er vel kunnugt, að að minsta kosti heldur minna en helmingur bændanna í kjördæminu fylgir þeim þingmönnum, sem nú eru.

Aðalstuðningur íhaldsins þarna suður frá er í sjávarþorpunum utan Hafnarfjarðar, þar sem menn eru ekki nógu vel upplýstir um stefnu þess flokks og hvernig hann t. d. fer að ráði sínu gagnvart smáútgerðinni úti um landið.

Þá gat hv. 2. þm. G.-K. þess, að flokkur jafnaðarmanna í kjördæminu væri minkandi og benti til þess, að flokkurinn hefði fengið færri atkv. við síðustu kosningar en áður. Það er rjett, að atkvæðatalan var nokkru minni. en það er augljóst, ef skoðað er nánar, að það stafar af minni þátttöku í kosningunum. Öllum er kunnugt, að stjórnarskrárbreytingin knúði fram kosningar um hásumar, þegar verkafólk á erfiðast að neyta kosningarrjettar síns. Þá var allmikill fjöldi hafnfirskra kjósenda, sem tilheyrir Alþýðuflokkrium, farinn burt og gat ekki kosið. Enda var það með vilja gert hjá íhaldsstjórninni, sem stóð að stjórnarskrárbreytingunni, að koma kosningunni á þann tíma, er verkafólki væri erfiðast að sækja. (MG: Þetta er ósatt!). Þetta er sannleikur og það vita allir, að sá var tilgangur stjórnarinnar. (PO: Þetta er vísvitandi lygi!). Það myndi hafa sýnt sig, ef kosningin hefði farið fram síðastl. haust, eins og lög stóðu til, hvernig þátttaka í Gullbringusýslu og atkvæðatala hefði fallið.

Að endingu leyfi jeg mjer að skora mjög eindregið á hv. 2. þm. G.-K. að koma með áskoranir mörg hundruð kjósenda úr Hafnarfirði um það, að Hafnarfjörður fái ekki sjerstakan þingmann.