25.01.1928
Neðri deild: 6. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2959 í B-deild Alþingistíðinda. (2744)
36. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Jeg hafði ekki tækifæri að hlusta á alla ræðu hv. 1. þm. Reykv. En af því, sem jeg heyrði, eru fáein atriði, sem jeg vildi gera athugasemd við.
Hann heldur því fram, að ómögulegt sje fyrir þá, sem ekki eru jafnaðarmenn, að vera með málinu, nema þeir sjeu kúgaðir. En jeg býst við, að hv. þm. sje kunnugt, að í mörg ár hafa komið endurteknar kröfur frá miklum meiri hluta íbúa Hafnarfjarðar og bæjarstjórninni líka. Þetta er röksemd, sem erfitt er fyrir hv. þm. að hnekkja. Fólkið sjálft á þessum stað færir fram þá kröfu, að þar sem bærinn er sjálfstæður kaupstaður og þar sem allir aðrir kaupstaðir í landinu, að fráteknum Siglufirði, sem er talsvert minni, hafa þessi rjettindi, þá eigi þeir að fá rjett til að kjósa þingmann. Hafnfirðingar, 3 þús. manns, telja sig eins færa um það og þann bæ með þúsund manns, sem sendir á þing þann ágæta mann, bæjarfógetann í Reykjavík.
Þær röksemdir í þessu efni, sem hafa verið metnar annarsstaðar, t. d. þegar Húnavatnssýslu var skift, eru þarna fyrir hendi. Fólkið biður sjálft um þetta. En hv. þm. hugsar minna um það en að berjast fyrir flokkinn og hagsmuni hans, þar sem hann óttast, að flokksbræður hans geti ekki unnið kjördæmið. — Jeg vil gefa honum betri vonir. Íhaldsmenn eiga að lifa svo í Hafnarfirði, að þeir hafi von um að vinna kjördæmið. Ef þeir treysta sjer ekki að lifa svo rjettlátlega, að þeim geti vaxið kjósendafylgi, þá sje jeg ekki, að þeir eigi neinn rjett á því, að þingið kúgi meiri hlutann í Hafnarfirði til þess að hlíta þessu gamla skipulagi. — Nei, það er öðru nær en hv. þm. (MJ) hafi nokkurn rjett til þess að drótta slíku að okkur, sem hann hefir gert; það er hann og hans menn, sem standa vísvitandi á ranglátum grundvelli í þessu máli. Hann veit, að framkoma íhaldsmanna undanfarið dæmir þá. Jeg vísa því öllum dylgjum aftur heim í föðurhúsin með þeim fulla rökstuðningi, að eigingirnin sje hjá þeim, sem hv. þm. talar fyrir.
Þó að það sje ekki siður minn að svara blöðum í þingsal, má jeg aðeins minna á, að aðalmálgagn Íhaldsflokksins talar um Framsóknarflokkinn sem aðalbændaflokkinn, og er það skoðun þess, að við eigum að gera þeim mögulegt að njóta rjettar síns. Og það er það, sem við ætlum að gera með skiftingunni.
Nú er Hafnarfjörður svo tiltölulega mikill hluti af kjördæminu, að ekki hefir tekist að koma að bónda í kjördæminu. Þar hefir verið í boði einhver hinn mesti merkisbóndi á Íslandi, sem hefir mikið gert til þess að lyfta bændastjett landsins með þeim málum, sem hann hefir barist fyrir, En það hefir orðið árangurslaust. Hafnarfjörður hefir jafnan borið bændahluta kjördæmisins ofurliði. Þetta ætti því að vera vegur til þess, að bændur kjördæmisins gætu betur notið sín, auk þess sem Hafnfirðingar óska þess sjálfir. Eftir skoðun íhaldsmálgagnsins, er jeg gat um áður, þá eru öll skilyrði fyrir hendi til þess að þetta mál eigi fram að ganga.