25.01.1928
Neðri deild: 6. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2964 í B-deild Alþingistíðinda. (2747)

36. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Magnús Jónsson:

Jeg skal ekki vera langorður að þessu sinni.

Hv. þm. Ísaf. var nú að halda sína jómfrúræðu. Var því von, að honum kæmu til hugar biðlar í því sambandi. Jeg skildi nú reyndar naumast, hvað hann átti við með þessu biðlatali sínu, nema ef hann hefir haldið, að jeg væri að óska eftir samvinnu við hans flokk til að breyta kjördæmaskipuninni. En þá hefir hann líka tekið biðlinum vel, því í niðurlagi ræðu sinnar gat hann þess, að síðar mætti tala í ró og næði um víðtækari breytingar á kjördæmaskipuninni.

En það er alger misskilningur hjá hv. þm., að jeg hafi staðið betur að vígi áður heldur en nú um að koma fram rjettlátum breytingum. Hv. þm. á sennilega við það, að jeg hafi þá tilheyrt stærra flokki. Sá flokkur, sem jeg heyri til, hefir enga afstöðu tekið til málsins. Auk þess er hann enginn stjettaflokkur, og því erfiðari aðstaða að sameina hann um mál sem þetta. Áhugamálin eru almennari og flokkurinn hefir meðal annars alls ekki tekið sameiginlega afstöðu um þetta mál, kjördæmaskiftinguna, að því er jeg best veit. Má vera, að hann geri það bráðum, en hann hefir ekki gert það.

Hæstv. dómsmrh. gladdi mig með tvennu. Í fyrsta lagi gaf hann mjer tryggingu fyrir því, að við yrðum altaf á kanti í þinginu. Þegar jeg þakka honum, þá skammar hann mig, og þegar jeg skamma hann, þá skammar hann mig líka. Það verður því gott tækifæri til að hreyfa sig hjer í þinginu, þar sem við hljótum að vera pólitískir óvinir. Samkomulag okkar persónulega er þar fyrir utan og kemur málinu ekkert við.

Hæstv. ráðh. var farinn að sækja sína lífsspeki í Morgunblaðið. Jeg óska, að framhald verði á því. Hann myndi hafa gott af því. Þótt jeg sje ekki Morgunblaðinu sammála um alla hluti, þá er þó svo margt gott, sem þar stendur, að hæstv. ráðh. hefði gott af að tileinka sjer það.

Hæstv. ráðh. sagði, að jeg ætlaði Framsóknarflokknum illar hvatir í þessu máli. En hefði jeg lofað hann fyrir það eða lýst því öðruvísi en það var, þá er jeg hræddur um, að það hefði farið eins og Snorri Sturluson sagði, að það hefði verið kallað háð, en ekki lof. Þá sagði hann, að jeg hefði verið með því, að Hafnarfjörður fengi þingmann. Það er rjett. En þó þannig, að jeg vildi bæta þingmanni við handa Hafnarfirði, en láta sýsluna halda sínum tveimur þm. En svo glaður sem hæstv. ráðherra er yfir þessu frv., þá ætti hann að athuga það, að það er ekki nóg að sýna rjettlætið á einum stað. Hann ætti t. d. þá líka að skifta Siglufirði frá Eyjafjarðarsýslu og gefa Siglfirðingum sinn þm. En þar yrði Framsóknarflokkurinn að gefa af sínu eigin, og þá er minna um örlætið.

Hann sagði, að þetta væri tóm eigingirni hjá mínum flokki. Við ættum bara að lifa svo í Hafnarfirði, að við ættum þar jafnan trygt þingsæti. En þetta eru bara innantóm orð. Það er svo margt, sem veldur flokkaskipun. Eftir því mætti eins ráðleggja stjórnarflokkinum að lifa svo hjer í Reykjavík, að þeir fengju þingmann hjer. Og eftir þessum forsendum ætti það að vera illri hegðun Framsóknarflokksins að kenna, að Björn Bjarnarson hefir ekki komist að í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Nei, ræða hæstv. ráðh. er ekkert nema ný sönnun um yfirdrepskap hans í þessu máli.