25.01.1928
Neðri deild: 6. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2969 í B-deild Alþingistíðinda. (2749)

36. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Flm. (Hjeðinn Valdimarsson):

Það er aðallega út af orðum hv. 2. þm. G.-K., sem nú er dauður, að jeg stend upp (ÓTh: Hann getur gengið aftur.), þótt hæstv. forseti láti hann ef til vill upp rísa. Hann sagði, að jeg eða sá flokkur, sem jeg fylgi, hefði boðið stj. fylgi sitt með vissum skilyrðum. Hjer er vitanlega um mesta misskilning að ræða, eða öllu heldur rangfærslu. Hann veit það vel., hv. þm., að Alþýðuflokkurinn sem heild tók ákveðna afstöðu til stj. þegar í byrjun, og sú afstaða var gerð kunn í því blaði hjer í bænum, sem jeg veit, að hann les gaumgæfilega daglega, Alþýðublaðinu. Við hjetum stjórninni engu fylgi, og gat því heldur ekki verið um neina skilmála að ræða. En við hjetum henni hlutleysi meðan hún fremdi ekki neina höfuðsök, að okkar áliti.

Þá vil jeg skora á hv. þm. að gera nú alvöru úr sínu raupi, ef hann getur, og koma með skriflega yfirlýsingu mörg hundruð kjósenda í Hafnarfirði um, að þeir sjeu mótfallnir skiftingunni. Hann veit það vel, að slíkt hlyti að hafa áhrif á málið, þó að jeg lofi honum engu.