09.02.1928
Neðri deild: 18. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3007 í B-deild Alþingistíðinda. (2767)

36. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Sigurður Eggerz:

Jeg þykist ekki geta hjá því komist að gera grein fyrir mínu atkvæði.

Jeg skal taka það fram, að jeg hefi tvisvar sinnum áður greitt atkvæði með samskonar frv. og þessu. Það hefir þá vakað fyrir mjer, að Hafnarfjörður er næststærsti kaupstaður landsins og að það væri órjettlátt, að hann hefði ekki fulltrúa eins og Akureyri, Ísafjörður, Vestmannaeyjar og Seyðisfjörður. Þetta hefir ráðið atkvæði mínu á hinum fyrri þingum, sem málið hafa haft til meðferðar. En jeg verð að segja það, að þetta er víst í fyrsta sinn síðan jeg kom á þing, að jeg hefi skift um skoðun í máli. Orsökin er ekki sú, að jeg hafi breytst sjálfur. En þeir atburðir hafa orðið í stjórnmálalífinu í þessu landi, sem valda því, að jeg get ekki greitt atkv. á sama hátt og áður.

Ein af fyrstu skyldum okkar, sem erum fulltrúar þjóðarinnar hjer á Alþingi Íslendinga, er sú, að varðveita fullkomlega hreinan skjöld í hverju máli. Við, sem eigum sæti hjer í þessum sal, megum ekki hafast neitt það að hjer, sem við ekki getum varið fyrir samvisku okkar. En mjer er það ljóst, að jeg get ómögulega varið það fyrir minni samvisku að greiða nú atkv. með þessu frv. Það er öllum augljóst, að með því að samþykkja það er verið að bæta einum fulltrúa við Jafnaðarmannaflokkinn á Alþingi. En vegna fjárstyrks þess, sem íslenskir jafnaðarmenn hafa fengið frá dönskum stjórnmálaflokki, sje jeg mjer ekki fært að stuðla að því, að vald þeirra aukist. Það er nú viðurkent, að danskir stjórnmálamenn hafa veitt jafnaðarmönnum hjer fje við kosningar. Af þjóðernisástæðum vil jeg því ekki greiða atkv. með þeim stjórnmálaflokki, sem þiggur danskt fje.