10.02.1928
Neðri deild: 19. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3073 í B-deild Alþingistíðinda. (2783)
36. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi
Frsm. meiri hl. (Hjeðinn Valdimarsson):
Af því að jeg dró það í efa, að íhaldsmennirnir í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefðu verið veikir, þegar atkvgr. um áskorun þá, sem bæjarstjórnin hefir sent hingað viðvíkjandi þessu máli, fór fram, fann hv. 2. þm. G.-K. ástæðu til að minnast á það hjer, að jeg hefði orðið veikur á kjósendafundi hjer síðastliðið vor, og taldi þm., að jeg hefði veikst af því að sjá ofurmennið, þáverandi forsætisráðherra, en núverandi hv. 3. landsk., Jón Þorláksson. Jeg verð nú að segja, að mjer finst lítið drengilegt af háttv. þm. að fara að koma með þetta hjer, þar sem hann vissi, að jeg var þá veikur og undir læknishendi, og að veikindi mín voru því ekkert í sambandi við komu þessa manns á fundinn. Hefi jeg svo oft mætt þeim manni á fundum, að mjer finst heldur grátt gaman að bregða mjer um, að jeg þori ekki að tala að honum áheyrandi, þegar mörg hundruð manna vissu, að jeg var veikur, enda hygg jeg, að ræða mín hafi ekki náð í hans garð. En hvað um það. Þetta er þó ekki samanberandi, þar sem jeg hjelt ræðu mína til enda, þrátt fyrir veikindin og þótt jeg yrði að hvíla mig í tæpar 5 mínútur, og er það meira en hafnfirsku íhaldsmennirnir hefðu gert, sem ljetu sig vanta við einfalda atkvgr.
Að endingu vil jeg segja það, að ef Íhaldsflokkurinn hefði að undanförnu barist eins ötullega fyrir rjettlátum málstað eins og hann berst nú fyrir ranglátum, þá myndi hann vera fjölmennari hjer á þinginu.