28.02.1928
Efri deild: 34. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3096 í B-deild Alþingistíðinda. (2803)
36. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi
Frsm. minni hl. (Jón Þorláksson):
Eins og jeg hefi sýnt fram á í nál. mínu, hafa kaupstaðir landsins 8 þm. nú af 36 kjördæmakosnum þm. Þessa þm. hafa kaupstaðirnir fengið án þess að önnur kjördæmi væru svift sínum þm., og altaf og undantekningarlaust hefir það verið vöxtur kaupstaðanna, sem þessu hefir ráðið. Og þegar litið er á það, hve vöxtur kaupstaðanna er ungur, verður ekki annað sjeð en að vel hafi verið úr þessu bætt, þó segja megi, að eitthvað vanti á, að þeir hafi þm. tölu í samanburði við gömlu kjördæmin. Það væri að vísu ekki neitt við það að athuga að láta kaupstaðina fá einn þm. í viðbót; þeir mundu samt ekki hafa tiltölulega fulltrúatölu eftir mannfjölda. En hv. frsm. meiri hl. tók það rjettilega fram, að á fleira er að líta en mannfjölda, og enn hafa ekki verið flutt rök fyrir því, að fulltrúar kaupstaðanna eigi nákvæmlega að vera 9 en ekki 8. Þó skyldi jeg ekki hafa neitt að athuga við það, að kaupstaðirnir fengju einn fulltrúa í viðbót, ef fylgt væri sömu stefnu í því efni og áður hefir tíðkast. En með þessu frv. er gengið inn á nýja braut, þar sem farið er fram á að flytja þm. úr sveitakjördæmi og í kaupstað, og verð jeg að telja það að ýmsu leyti mjög varhugaverða braut. Og af þessum sökum er það meðal annars, að jeg álít, að ekki sje rjett að samþ. frv. þetta.
Jeg hefi gert grein fyrir því í nál. mínu, að ef taka eigi þingsæti frá sveitunum í því skyni að bæta kaupstöðunum það upp, þá sje það að minsta kosti rangt að byrja þarna, og það af þeirri ástæðu, að G.-K. verður svo fjölmenn eftir skiftinguna, að hún á rjett á að vera tvímenningskjördæmi áfram. G.K. er lítið eitt fámennari en 3 stærstu tvímenningskjördæmin, en talsvert fjölmennari en 3 þau minstu, auk þess sem hún er fjölmennari en nokkurt einmenningskjördæmi er nú.
Þó að maður viðurkenni, að breytingar á kjördæmaskipun geti verið á rökum bygðar, þá má ekki binda sig algerlega við mannfjöldann, enda væri það misrjetti og algerlega rangt gagnvart gömlu sveitakjördæmunum að taka þm. frá þeim eftir fólkstölu. Þó að viðurkent sje, að kaupstaðirnir hafi orðið útundan, vegna þess hvað vöxtur þeirra er nýr, þá gefur það ekki næga ástæðu til að fjölga fulltrúum þeirra á kostnað gömlu kjördæmanna. Hjer er líka um alveg sjerstaka nýlundu að ræða, eins og jeg hefi tekið fram, að taka þm. frá gömlu kjördæmi til þess að fá hann þessu nýja kjördæmi. Hv. frsm. meiri hl. gat þess rjettilega, eins og tekið er fram í nál. mínu, að með þessu frv. er fyrsta sporið stigið til þess að flytja beinlínis valdið úr sveitunum og í kaupstaðina. Hann var að vísu að reyna að mótmæla þessu, en gat þó ekki neitað því, að þetta spor er verið að stíga. Enda getur engan furðað á því, þó að rök hans reynist ljettvæg, þegar litið er á, hvernig mál þetta er fram borið.
Nú er vitanlegt, að báðar sýslurnar eru á móti skiftingunni á þessum grundvelli, og báðir þm. kjördæmisins eru einnig andvígir henni, en þeir hafa mikinn meiri hluta kjósenda kjördæmisins á bak við sig. Allir vita líka, að hjer er beinlínis um flokksmál Alþýðuflokksins að ræða, eins og líka hitt, að samþykt þessa frv. er þegar fyrirfram ráðin, vegna þess að enginn gengur þess dulinn, að ráðin á þessu þingi eru öll í höndum þessa litla flokks. Það hefir þegar sýnt sig, og á þó eftir að sýna sig betur, að stærsti flokkurþingsins gerir sjer að góðu að láta undan hvenær sem þessir bandamenn hans krefjast þess. (Dómsmrh. JJ: Þeir hafa það svei mjer gott!). Já, þeir hafa það gott — og þannig er þetta. Alþýðuflokkurinn gerir sjer engar vonir um að ná þingsæti í sveitunum; allar vonir hans um aukið þingfylgi eru bundnar við kaupstaðina, en þar er Framsóknarflokkurinn fylgislaus, og verður það áfram. Þess vegna fylgja Framsóknarmenn því, að Alþýðuflokkurinn geti bætt við sig einu þingsæti. En ef maður lítur nú á, hvar bæta eigi við, svo að kaupstaðirnir fái hlutfallslega rjetta fulltrúatölu, miðað við sveitirnar, þá er vitanlegt, að það er ekki Hafnarfjörður, sem á að fá þann þm., heldur Reykjavík. En jafnaðarmenn kæra sig ekkert um að fjölga þm. Reykjavíkur, því þeir vita sem er, að það er vonlaus barátta fyrir þá að ætla sjer að ná í fleiri þingsæti þar en þeir hafa, og þess vegna vilja þeir Hafnarfjörð heldur, enda ekki ósennilegt, að þeim verði þar að vonum sínum. Og Framsóknarflokkurinn, sem er stærstur flokkur þingsins og studdur við atkvæði sveitanna, beygir sig undir okið og gerist beinlínis til þess að flytja valdið úr sveitunum og í kaupstaðina.
Jeg held jeg hafi þá svarað öllu, sem ástæða er til að svara í ræðu hv. frsm. meiri hl., öðru en því, að vegna ólíkra hagsmuna hefði Hafnarfjörður aldrei notið rjettar síns hjá þm. kjördæmisins. En hv. 1. þm. þessa kjördæmis (BK) hefir svarað því við 1. umr. þessa máls, að það væri ekki hægt að benda á neitt því til stuðnings, að fulltrúar kjördæmisins hefðu lagst á móti hagsmunum Hafnarfjarðar hjer á þingi. Annars held jeg, að Hafnarfjörður beri þess ljósastan vottinn, að hann hafi ekki verið afræktur af þingmönnum kjördæmisins. Jeg held, að fremur mætti segja, að þm. hafi gengið fulllangt í kröfum sínum fyrir Hafnarfjörð, og jafnvel svo langt, að ekki hafi öðru sinni legið nær, að gengið væri á móti þjóðarhagsmunum.
Í samræmi við þetta, sem jeg hefi nú sagt, legg jeg því til, að frv. verði felt. Jeg geri að svo stöddu engar till. um, að Hafnarfjörður fái þm. á annan hátt og vil ekki vera með að stíga það óhappaspor að seilast til sveitanna eftir þm. til þess að gefa hann kaupstöðunum.