28.02.1928
Efri deild: 34. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3124 í B-deild Alþingistíðinda. (2808)
36. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi
Frsm. minni hl. (Jón Þorláksson):
Jeg held, að hæstv. dómsmrh. ætti ekki að tala um vanstilt skap annara, því það gæti verið samanborið við skap hans sjálfs. — Jeg verð að segja hæstv. ráðh. það, að jeg hefi þrásinnis leikið mjer að því að hleypa honum upp, og þetta hefir altaf tekist; altaf missir hann stjórnina á sjálfum sjer. Hæstv. dómsmrh. heldur líka altaf, að hann beri hærri hlut í orðasennum og er mjög ánægður yfir; jeg ætla ekki að svifta hann þessari litlu ánægju. En yfirleitt hafa menn þar á aðra skoðun, og það eru margir, sem álíta, að hæstv. dómsmrh. geti ekki talað af skynsemi um nokkurn hlut, vegna þess að hann þurfi altaf að tala um alt í einu. Svo hefir einnig verið nú, en í þetta sinn er það afsakanlegt, því að hann þarf þess vegna sín og flokksins, að athyglin dragist sem mest frá þessu máli, sem hjer er til umræðu, og auðvitað hefði hann helst óskað þess, að það næði að ganga gegnum þingið umræðulaust.
Hæstv. dómsmálaráðh. var að álasa bændaflokknum í Danmörku fyrir það, að hann hafi verið fulllengi á móti kjördæmaskiftingunni. Það átti víst að skilja svo, að bandalagið, sem hjer ræður, ætli ekki að feta í fótspor þeirra. Hæstv. ráðh. þótti það vanta í ræðu mína, að jeg hefði ekki reynt að sýna bændavaldið í G.-K. Ennfremur sagði hann, að jeg hefði kingt því — þetta eru hans smekklegu orðatiltæki — og játað það með þögninni, að núverandi þm. kjördæmisins hefðu ekkert gert bændastjettinni til góðs. Þessi ummæli hæstv. ráðh. sýndu það, sem jeg reyndar vissi, að hann var máli þessu fylgjandi vegna þess að honum er illa við þm. kjördæmisins. Jeg get ekki litið á það sem ástæðu, hvernig þeir menn eru, sem gegna þm.störfunum, en þótt hæstv. ráðh. reyni að rangfæra og halla til um þeirra framkomu, þá vita allir, að þessir tveir þm. eru meðal hinna merkustu núlifandi Íslendinga. Honum tekst aldrei að draga úr því, því að það er sá dómur, sem landsmenn hafa gefið þeim alment. Báðir þessir þm. voru endurkosnir við meira fylgi en áður, og það ber vott um, að kjósendur eru ánægðir. Jeg álít, að þá sje bændavaldinu rjett beitt, ef bændur fá að ráða því, hverja þeir hafa fyrir þm. Það má auðvitað segja eins og hæstv. ráðh., að þessir menn eru ekki bændur.
Hvaða flokkur skipar stjórn landsins? Það er Framsóknarflokkurinn, sem telur sig sjerflokk bænda. Hvaða bændur hafa þeir sett í stjórn landsins? Ætli mönnum verði ekki erfitt um svör, þegar þeir eiga að telja bændurna í stjórninni? Það hefir farið eins fyrir þeim bændum, sem styðja stjórnina, og kjósendum í G.-K., að þeir hafa kosið menn utan sinnar stjettar til þess að vera fulltrúar sínir. Ef það er ekkert athugavert við það, að framsóknarmenn kjósi menn utan bændastjettarinnar í stj. landsins, þá er heldur ekkert athugavert við það, að bændur í G.-K. fari út fyrir sína stjett. Jeg geri ekki ráð fyrir, að þessi röksemdaleiðsla bíti mikið á hæstv. dómsmrh.; ef til vill minnist hann á, að hann hafi einhverntíma verið bóndi og annarhvor hinna ráðh. líka. Aðalatriðið er heldur ekki, hvort þm. er bóndi eða ekki. Spurningin er: Hverjir eru það, sem ráða þingsætunum? Hjer er verið að taka eitt þingsæti af bændum G.-K., því að þeir hafa ráðið kosningu þm. til þessa.
Jeg sje ekki ástæðu til að vega framkomu hæstv. dómsmrh. eða leiðrjetta hinar herfilegu missagnir hans, nje heldur að telja misgerðir stj. Jeg álít það alveg vera utan við þetta mál, og jeg vil biðja hæstv. dómsmrh. að reyna að skilja það, að það er þess vegna, sem jeg vil ekki vega kosti þessara manna á móti rangfærslum hans og missögnum.
Þá kom hæstv. dómsmrh. inn á það mál, er jeg gat um, sem sje það, hvað gert var til atvinnubóta fyrir Hafnfirðinga, þegar verst stóð þar á. Með sinni venjulegu ófyrirleitni bar hæstv. dómsmrh. fram þau ósannindi, að Íhaldsflokkurinn og jeg hafi verið á móti þeim bótum. Það sem farið var fram á, var, að hið opinbera styrkti það að Hafnfirðingum gætu bætst 2 innlendir togarar. Þetta var mjög skynsamleg og hófleg till., og greiddi jeg henni atkv., en þm. kjördæmisins bar hana fram. Jeg hygg, að flestir þeirra, sem nú eru í Íhaldsflokknum, hafi greitt þessari till. atkv. í Nd., en hún fjell með jöfnum atkv. að tilstilli flokksbræðra hæstv. núverandi dómsmrh. Jeg held, að nú sjeu flestir sammála um, að Hafnfirðingum hefði verið betra að fá þessa tvo innlendu togara í viðbót en að fá þá útlendu veiðistöð, sem komst þar inn, þegar hinu var synjað.
Þá fór hæstv. dómsmrh. að benda bændum á, að það væri eins gott að láta jafnaðarmenn fá þingsæti úr sveitakjördæmunum og að láta Íhaldsflokkinn halda þeim. Hæstv. dómsmrh. er svo nærri því að vera sósíalisti og stendur þeim svo nærri — og í fullu samræmi við þá skoðun hans er þetta frv. Hann þykist með þessu vera að ræða málið á „nytsemdargrundvelli“ fyrir bændur. Jeg er ekki í vafa um það, að hann yrði ánægðastur með að slaka svo til á kjördæmaskipuninni, að Alþýðuflokkurinn fái fleiri og fleiri þingsæti, því að hann veit sem er, að fái sveitamenn að ráða, verða þau aldrei lengi í höndum Alþýðuflokksins.
Jeg verð nú að hlaupa yfir ýmislegt, sem hæstv. dómsmrh. sagði, þar eð brátt mun tími til að enda, en jeg skal lofa honum því að muna eftir honum við tækifæri seinna. Þó get jeg ekki stilt mig um að víkja nokkuð að því, er hann sagði um betrunarhús og letigarð og ummæli mín í því sambandi. Hjelt hann langan kapítula um ástandið í betrunarhúsinu og nauðsyn á nýju betrunarhúsi.
Jeg er ekki á annari skoðun um þetta nú en jeg hefi áður verið, og hefi jeg lýst því yfir, að jeg væri því fylgjandi, að reist yrði nýtt betrunarhús. Hitt er annað mál, að jeg er ekki eins sannfærður um það og hæstv. dómsmrh., að rjettmætt sje að eyða fje landsins í byggingu letigarðs. Vegna þess að þar með væri stofnað til miklu betra uppeldis handa verstu slæpingjum landsins en þeir nokkurn tíma hafa átt völ á, yrði vistin á letigarði mjög eftirsótt. Og jeg þekki það vel hinn pólitíska skyldleika þeirra, sem nú ráða, og slæpingjanna, að á slíkri stofnun yrði síst farið að gera þeim erfiðari kjör en þeir nú hafa. (Dómsmrh. JJ: Hafa slæpingjar í Íhaldsflokknum það svo gott núna?). Nei, slæpingjar hafa það svo erfitt yfirleitt, að það væri sem þeim opnaðist paradís, ef þeir kæmust á letigarð hæstv. dómsmrh.
Það var líka alveg eftir hæstv. ráðherra, þegar hann ætlaði að fara að gera samanburð, að fyrir honum urðu heimavistirnar, sem áður voru við mentaskólann. Honum fanst það alveg hliðstæð fjarstæða að byggja fyrir fátæka sveitapilta, sem nám stunda og eiga við svo erfiðan og illan húsnæðiskost að búa, að heilsu þeirra stafar hætta af. Honum fanst meiri fjarstæða að ráða bót á þessu ástandi en þessi letigarður, sem hefir sett sig fastan á heilabú hans. Jeg get fullvissað hann um það, að það eru fleiri en „ofstækisfullir íhaldskurfar“, sem láta sjer ant um námsmenn við mentaskólann og horfa ekki upp á það með jafnaðargeði, að þeir verði að hafast við í þröngum og ljelegum húsakynnum hjer í Reykjavík.
Þá fór hæstv. ráðh. að tala um, að jeg vildi láta leggja vegi fyrir tekjuhalla. Kom þar fram, að eins og allir vita, ber ráðh. ekki hið minsta skynbragð á fjármál eða það, sem þeim við kemur. Vitanlega er eins hægt að leggja vegi fyrir tekjuhalla eins og að vinna aðrar framkvæmdir á þann hátt. Hitt er alt annað mál, hvort menn vilja fara þá leið. En hitt geta allir sjeð, og hæstv. ráðh. ef til vill líka, að ef notuð er 1 miljón króna fram yfir tekjur, þá er eins hægt að byggja vegi fyrir þá miljón eins og að verja henni til einhvers annars. Það er því ósköp vel hægt að leggja vegi fyrir tekjuhalla. Jeg vil enda mál mitt á því sama og hæstv. dómsmrh. — á því að tala um æskuna. Hæstv. ráðh. hefir, eins og hans var von og vísa, ranghermt ummæli mín, er fjellu á þingmálafundi í Borgarnesi 1926. Er því best, að jeg segi söguna eins og hún gekk. Kringum ræðupallinn voru fáeinir ungir menn, er klöppuðu ákaft í hvert skifti, sem hæstv. dómsmrh. hafði lokið máli sínu. Sagði jeg þá eitthvað á þessa leið: „Jeg sje hjer nokkra unga menn, sem ekki fylgja mjer að málum“. — Þetta hefir hæstv. ráðh. síðan básúnað í ræðum og blaðaskrifum sem sönnun þess, að æskan sje með honum. Svona rangt segir hann jafnan frá viðskiftum sínum við andstæðingana, og það er ekki of djúpt tekið í árinni, þótt sagt sje, að engu orði hans sje trúandi, þegar um slíkt er að ræða. En ef hann lætur sjer í mörgum málum slík kaldyrði um munn fara og hann hefir látið sjer sæma að viðhafa um heimavistirnar við mentaskólann, þá mun hann komast að raun um, að æskan hefir líka tilfinningar. Og þótt honum hafi tekist að skjalla æskulýðinn, meðan hann var að komast í ráðherrastólinn, þá mun hann með sama áframhaldi verða fljótur ofan úr honum aftur, fyrir atbeina æskunnar.