16.02.1928
Efri deild: 24. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3138 í B-deild Alþingistíðinda. (2817)

91. mál, sala Garða á Akranesi

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg vil leyfa mjer að þakka hv. allshn. fyrir flutning þessa máls. Eins og þegar hefir verið tekið fram, óska Akurnesingar að fá land þetta keypt, og er ætlun þeirra að nota það til ræktunar. Forgöngumaður máls þessa er maður að nafni Ólafur Björnsson og er kaupmaður á Akranesi. Hann hefir átt tal um það við mig, og sagði jeg honum þá, að svo fremi sem það fjelli í mitt hlutskifti að semja um jarðasölu þessa við kauptúnið, þá myndi jeg setja það sem ófrávíkjanlegt skilyrði, að jarðir þessar verði ævarandi eign þess. Sagði hann og, að það væri ætlun þeirra, er að málinu stæðu. Eins og kunnugt er, er Akranes eitt hið mesta landbúnaðarþorp á landinu. Er jarðrækt, og einkum garðrækt, þar á háu stigi. Vilja þorpsbúar því fá land þetta til yrkingar.

Jeg vona, að frv. þessu reiði vel af, og því fremur, sem prestur sá, sem hlut á að máli, er því hlyntur, og þm. kjördæmisins mun fylgja því með fullri einurð í Nd.