25.02.1928
Neðri deild: 32. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3142 í B-deild Alþingistíðinda. (2826)

91. mál, sala Garða á Akranesi

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Þegar þetta mál var tekið fyrir í allshn., voru aðeins 3 nefndarmenn á fundi. Var samþ. af þeim öllum að leggja til, að frv. verði samþ. með þeirri einni breyting, að bætt sje inn í nýrri grein um það, að mat á eigninni og greiðsla kaupverðs skuli fara eftir ákvæðum laga frá 1907 um sölu kirkjujarða.

Jeg tók það fram, að um þetta mál hefðu fjallað aðeins 3 nefndarmenn, til þess að vekja athygli á, að hinir nefndarmennirnir hafa óbundnar hendur um atkv. sín.