25.02.1928
Efri deild: 32. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3145 í B-deild Alþingistíðinda. (2843)

37. mál, nauðungaruppboð á fasteignum og skipum

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Frumvarp þetta er komið frá hv. Nd. og fór í gegnum þá deild án þess að gerðar væru á því breytingar.

Allshn. hefir haft málið til meðferðar, og getur hún fallist á þær breytingar frá gildandi lögum, er frv. felur í sjer um uppboð á fasteignum, en aftur á móti getur hún ekki fallist á að láta nægja aðeins eina auglýsingu um þessi uppboð. Þar sem samgöngur eru svo strjálar sem enn eru þær hjá okkur, er það varhugavert að birta uppboðsauglýsingu aðeins einu sinni, einkum þegar um skip er að ræða. Skip eru oft seld til lúkningar á sjóveði, og getur þá svo farið, að uppboðið fari fram á þeim stað, þar sem þriðji maður, er kröfu á í skipinu, er ekki nærstaddur og býr svo langt frá, að honum hefir ekki borist vitneskja um uppboðið. Því að ef það er ekki trygt, að öllum, sem kröfurjett eiga í skipi, sje kunnugt um uppboðið, getur af því leitt tjón.

Þótt það sje úr lögum numið að halda 3 uppboð, þá getur það verið mjög varhugavert að nema úr lögum, að uppboðið sje auglýst þrisvar, og leggur nefndin til, að frv. verði samþ. með þeirri breytingu, er í nál. getur. Brtt. er svo ljós, að hún þarf ekki frekari skýringa við.