02.02.1928
Efri deild: 12. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3147 í B-deild Alþingistíðinda. (2852)
57. mál, þingsköp Alþingis
Flm. (Einar Árnason):
Það mun ekki vera venjan við fyrstu umræðu að ræða einstök atriði frv., og þingsköpin munu ekki ætlast til þess. En það stendur svo sjerstaklega á um þetta frv., að þó að það sje ekki nema þrjár greinir, þá fjalla þær um sitt atriðið hver, og eru þannig sjálfstæðar, að þótt ein greinin væri feld, gætu hinar orðið samþ. og frv. afgreitt.
Jeg finn þess vegna ástæðu til þess að gera örstutta grein fyrir hverju einstöku af þessum þremur aðalatriðum, sem felast í frv. — Er það þá um 1. gr. að segja, að hún gerir ráð fyrir því að fella burt úr 16. gr. þingskapanna eina setningu, sem sje þá, að enginn þm. megi vera í fleiri fastanefndum en tveimur.
Allir hv. deildarmenn kannast við þetta atriði, að það hefir orðið nokkur deila um það, bæði í fyrra og nú á þessu þingi; og það má segja, að þar hafi klögumálin gengið á víxl. Jeg lít svo á, að það sje erfitt, og oft ef til vill ekki hægt, að framfylgja svo þessu ákvæði þingskapanna; að það komi ekki í bága við önnur ákvæði. Og þá sýnist í rauninni rjett að nema það burtu, til þess að það þurfi ekki að valda deilum lengur.
Það mun nú vera svo, og er í sjálfu sjer eðlilegt, að sá meiri hluti, sem til er á hverjum tíma hjer í Ed., noti sinn kraft til þess að setja menn í nefndir eftir því, sem hann hefir atkvæðamagn til. Þetta getur komið nokkuð ójafnt niður, en eigi að síður verð jeg að halda því fram, að það sje mjög eðlilegt.
Jeg þarf ekki að dvelja lengi við þetta atriði; jeg þykist vita, að öllum hv. þdm. sje ljóst, hvað hjer er átt við með þessari grein frv.
Þá er 2. gr. Hún gerir ráð fyrir dálítið breyttu skipulagi innan deilda þingsins. Það hafa komið fram raddir um það hjer á þingi áður, að það mundi vera heppilegra fyrirkomulag en nú er, að þm. flyttu ræður sínar úr sjerstökum rar til gerðum ræðustóli. Þetta atriði hefir. einnig verið athugað og að nokkru undirbúið af húsameistara ríkisins, þannig að hann hefir gert teikningu af báðum þingsölunum, þar sem er breytt dálítið skipulagi. Hann hefir gert um þetta áætlun. Hann gerir ráð fyrir, að þingmenn fái aðra stóla en nú eru og þægilegri. Það tel jeg mikla framför; mjer þykir ekki ólíklegt, að það sje stólunum að kenna eitthvað af því, sem talað er um, að þm. sjeu ekki stöðugir í sætum sínum.
Þá er gert ráð fyrir, að ráðherrarnir sitji allir saman, og verður það að álítast þægilegra fyrir þá, og þeim gert hægara um vik að ná saman á meðan á umr. stelpur.
Þá er ennfremur gert ráð fyrir, að við borð þm. sje hilla eða skápur, þar sem þeir geyma bækur þær, er þeir þurfa að grípa til sjer til afnota, og verður það að álítast þægilegra en að sækja bækurnar út fyrir þingsalinn, eins og nú tíðkast.
Jeg geng þess ekki dulinn, að breyting þessi mundi hafa dálítinn kostnað í för með sjer, og verður um hana að fara eftir því, hvað mönnum lítst í þessu efni. Hins mætti þó geta, að úti um land hefir verið beðið eftir því með óþreyju að komast í samband við Alþingi á þann hátt, að ræðum þm. væri útvarpað. Kæmist það á, þegar t. d. útvarpsmálið er komið í gott horf, þá mundi þægilegra að útvarpa ræðunum, ef þær væru fluttar úr einum og sama ræðustóli.
Þá kem jeg að 3. gr. frv., sem fyrir mjer er aðalatriði málsins. Þess er getið í greinargerðinni, að frv. sje flutt sem sparnaðartill., og liggur hún aðallega í þessari 3. gr.
Það hefir verið allmikið um það rætt, að þinghald þjóðarinnar sje orðið dýrt; og til þess að ljetta af ríkissjóði einhverju af þessum kostnaði, hefir verið gripið til þess, eins og stjórnarskrárbreytingin ber með sjer, að þingið yrði aðeins háð annaðhvert ár. Það virðist að minsta kosti benda á, að margir sjeu þeirrar skoðunar, að úr þessum kostnaði þurfi að draga og horfa ekki í, hvort þingið geti verið jafngagnlegt að öðru leyti. En þessi langi þingtími, sem mjög er vitnað í, stafar af því, að minni hyggju, að vinnubrögð þingsins eru ekki í því lagi, sem þau ættu að vera eða gætu verið. Jeg geri nú ekki ráð fyrir með frv. þessu að breyta öllum vinnubrögðum þingsins, en spor í rjetta átt ætlast jeg þó til, að þetta verði.
Hjer er gert ráð fyrir að takmarka tíma þann, sem þm. hafa til þess að flytja ræður, jafnhliða því, að lagt er til að fækka ræðunum. Vitanlega má um það deila, hvort tímaspursmál það, sem stungið er upp á í frv., sje heppilegt eða ekki, enda get jeg fallist á breytingar í því efni, ef jeg sje, að þær muni fremur ná þeim tilgangi, sem fyrir mjer vakir. Því að aðalatriðið fyrir mjer er að stytta þingræðurnar. Og takist það, er jeg sannfærður um, að þingið styttist og að útgáfa Alþingistíðindanna verður að mun ódýrari en nú á sjer stað. Með þannig bættum vinnubrögðum þingsins er því talsvert unnið, en engu tapað. Hinsvegar er aldrei fyrir það girt, að ekki geti hlotist skaði af að hverfa að því ráði að halda þing aðeins annaðhvert ár.
Sje jeg svo ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri, en vonast eftir, að hv. deild taki málinu vel og lofi því að ganga til 2. umr. og allshn.