02.02.1928
Efri deild: 12. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3151 í B-deild Alþingistíðinda. (2854)

57. mál, þingsköp Alþingis

Flm. (Einar Árnason):

Jeg þarf, ekki að vera óánægður yfir undirtektum hv. þm. Snæf. Hann sagði að vísu, að breytingin, sem felst í 1. gr., hefði enga „praktiska“ þýðingu. Það má nú kannske til sannsvegar færa. En hún hefir þó þá þýðingu, að koma í veg fyrir árlegar deilur um þetta efni.

Þá skildist mjer á orðum hans, að 2. gr. frv. æti upp sparnaðinn, sem gert er ráð fyrir í 3. gr. Á þetta get jeg ekki fallist. Eins og jeg tók fram í fyrri ræðu minni, að kæmi til framkvæmda breytingin í 2. gr., mundi hún kosta eitthvað dálítið, en sá kostnaður yrði aðeins í eitt skifti fyrir öll. Og það er ekki óhugsandi, að sú breyting yrði þess valdandi, að þm. sæktu ekki eins upp í ræðustólinn og ræður þeirra færri en á meðan þeir tala úr sæti sínu. En um þetta er ekkert hægt að segja fyrirfram. Það verður að sýna sig í framkvæmdinni.

Um ákvæði 3. gr. tók jeg beint fram, að það gæti verið álitamál, hvað langt yrði gengið í þeim takmörkunum, sem þar er stungið upp á. Aðalatriðið fyrir mjer er vinnusparnaðurinn, og hann fæst með því að fækka þingræðunum og stytta þær.

Hv. þm. Snæf. taldi rjett að takmarka ræðufjölda ráðherra, og má það vel vera, en jeg sá mjer ekki fært að gera það svona til að byrja með.

Annars vænti jeg, að hv. allshn. sýni málinu velvilja í aths. sínum, og get jeg lofað því fyrirfram að fallast á allar breytingar hennar, sem miða í þá átt að fullkomna þessa tilraun mína um að bæta vinnubrögð þingsins.