08.03.1928
Efri deild: 42. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3183 í B-deild Alþingistíðinda. (2891)
57. mál, þingsköp Alþingis
Frsm. (Jón Þorláksson):
Allshn. hefir athugað frv. þetta, sem fyrst var til meðferðar hjer í deildinni, en er nú komið aftur frá Nd. Og enda þótt hún sje ekki sammála um, að ákvæðið í 2. gr. um skipun utanríkismálanefndar sje sem heppilegast, hefir hún ekki komið fram með brtt., og mælir því með, að frv. verði samþykt eins og það liggur fyrir.