14.02.1928
Neðri deild: 22. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3203 í B-deild Alþingistíðinda. (2921)
38. mál, þinglýsing skjala og aflýsing
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Þar sem brtt. þessum var ekki útbýtt fyr en á fundinum, þá leiðir af sjálfu sjer, að ekki hefir verið hægt að bera þær undir nefndina. Það, sem jeg því segi um þær, er frá mínu eigin brjósti, en ekki mælt fyrir hönd nefndarinnar. Till. þessar eru ekki veigamiklar og snerta ekki kjarna málsins. Um 3. till. er það að segja, að eins og jeg hefi tekið fram áður, þá get jeg gengið inn á hana, og það var aðeins fyrir gleymsku, að jeg tók hana ekki upp í till. nefndarinnar. Um 1. brtt. er það að segja, að jeg læt það óátalið, hvort brtt. þessi verður samþ. eða ekki, því jeg lít svo á, að embættismönnum sje það í sjálfsvald sett, hvort þeir hafa það eins og ákveðið er í frv. eða ekki. En verði brtt. þessi samþ., þá fylgir henni það, að það vantar ákvæði um, hvað gera eigi við þau skjöl, sem tekin eru út úr, en úr því má bæta með reglugerðarákvæði.
Brtt. 2, við 11. gr., a-liður, er ekki efnisbreyting, því að það leiðir af sjálfu sjer, að skrárnar eiga að vera í stafrófsröð. Út á b-lið þessarar till. hefi jeg ekkert sjerstakt að setja. Jeg get viðurkent, að það sje „praktiskara“ að hafa sjerstakar bifreiðaskrár.
Þá er síðasta brtt., að í staðinn fyrir „1. júlí 1928“ komi: 1. janúar 1929. Hvað þetta atriði snertir, þá verð jeg að halda fast við till. nefndarinnar, að lögin öðlist gildi 1. júlí þ. á., því að jeg tel sjálfsagt að byrja á þessu fyrirkomulagi strax. Ef óumflýjanlegt væri að breyta þessum tíma, sem gert er ráð fyrir í frv., að lögin öðlist gildi 1. júlí, þá fyndist mjer þó skárra að hafa hann 1. okt. þ. á. en 1. jan. 1929. En sem sagt, mjer finst það óþarfi, þar sem hægt er að fá hinn fyrirskipaða pappír fáum dögum eftir 1. júlí.