25.02.1928
Neðri deild: 32. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3209 í B-deild Alþingistíðinda. (2938)
127. mál, skattgreiðsla h/f Eimskipafélags Íslands
Hjeðinn Valdimarsson:
Jeg gerði fyrirvara í nefndinni um að flytja þetta frv. Jeg álít það varhugaverða leið að undanþiggja einstaklinga eða fjelög lögboðnum sköttum.
Það var mikið gert að því á fyrri öldum, og breiddist sú venja svo mjög út, að heilar stjettir höfðu forrjettindi um skattaálögur, en alþýðu manna var ofþyngt með skattabyrðum.
Þetta frv. er að nokkru leyti vísir til þess sama hjer, þótt stutt sje farið. En mjór er mikils vísir og fleiri hafa leitað til Alþingis um skattfrelsi og skattaívilnanir nú á síðustu árum en Eimskipafjelagið.
Heldur vildi jeg fara þá leið, að styrkur til Eimskipafjelagsins yrði hækkaður í fjárlögum. Jeg játa það, að Eimskipafjelagið hefir unnið mjög þarft verk, og hlutabrjef þess hafa verið útbreiddari um landið meðal alþýðu manna en hlutabrjef annara fjelaga. En það er nú samt komið svo um þetta fjelag, að hlutabrjef þess hafa safnast svo á einstakra manna hendur, að núverandi stjórn þess hefir í höndum meiri hluta hlutafjár fjelagsins, svo að það er algerlega komið undir geðþótta þessara manna, sem með völdin fara í fjelaginu, hvernig því er stjórnað. Sá eini maður, sem ríkisstjórnin skipar í stjórn þess, getur þar engu um ráðið. Jeg vil því láta ríkið setja það að skilyrði fyrir styrkveitingum til Eimskipafjelagsins, að það fái hlutabrjef fyrir þá upphæð, sem það veitir fjelaginu.
Það hefir að vísu ekki verið úthlutað arði af brjefunum um mörg ár, en jeg verð að álíta það sanngjarnt, að ríkið taki hlutabrjefin upp í þær upphæðir, sem það veitir fjelaginu, þangað til svo er komið, að það hafi meiri hluta atkvæða í fjelaginu. Þá fyrst er fyrirkomulag Eimskipafjelagsins í rjettu horfi, þegar því verður stjórnað af þjóðinni. En a. m. k. er ærið varhugavert að ákveða slík forrjettindi til handa Eimskipafjelaginu, án tillits til þess, hvort fjelagið þyrfti ívilnunarinnar. Ef girða ætti fyrir það að fjelagið gæti auðgað hluthafa sína þannig á kostnað ríkisins, yrði að setja skilyrði þess efnis, að þessar skattaívilnanir giltu ekki, ef hluthafar fengju arð.
Jeg mun ekki koma fram með brtt. við frv. við þessa umr., en jeg geri ráð fyrir, að það komi fram brtt. frá okkur jafnaðarmönnum við 2. umr.