15.03.1928
Efri deild: 48. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3219 í B-deild Alþingistíðinda. (2955)

127. mál, skattgreiðsla h/f Eimskipafélags Íslands

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg flutti fyrir nokkrum dögum brtt. á þskj. 469, og hafa síðan komið fram 2 brtt. við hana.

Það, sem vakti fyrir mjer með því að stytta það tímabil, sem fjelagið væri undanþegið skatti, er, að mjer þykir ekki örvænt um, að hagur fjelagsins breytist svo, að það þurfi ekki að veita því þessi hlunnindi til langs tíma í einu. Annars hygg jeg, að naumast þurfi að kvíða því, að þingið verði fjelaginu mótsnúið framvegis fremur en hingað til. Hinsvegar tel jeg ekki ástæðu til þess, að hluthafarnir fái arð af brjefum sínum, meðan fjelagið nýtur svo mikils styrks beint og óbeint, sem það nýtur nú: En um þetta hefir ekki fengist fult samkomulag, með því að nokkrir hluthafanna standa á móti því, að arður falli niður. Mun jeg því greiða atkv. með því að halda arðinum, og geri jeg það til samkomulags, þótt mjer finnist ekki, að svo ætti að vera.

Um brtt. mína um, að fjelagið veiti ókeypis far alt að 60 mönnum á ári, er það að segja, að jeg tel hana mjög sanngjarna, vegna þess að eins og nú stendur á, veldur hún sama sem engum kostnaðarauka fyrir fjelagið — af því að farrýmin eru oftast hálftóm milli landa —, en getur hinsvegar orðið landsmönnum til mjög mikils gagns.

Jeg býst við, að ef þetta yrði samþ., þá yrði að vera samkomulag um það milli væntanlegs mentamálaráðs og stjórnar Eimskipafjelagsins, hvernig þetta yrði framkvæmt. Og þar sem jeg hefi altaf hugsað mjer, að þetta yrði framkvæmt þannig, að það yrði þeim, sem þess eiga að njóta, til sem mests gagns, en Eimskipafjelaginu til sem minsts ógagns, þá er jeg fylgjandi brtt. og mun greiða henni atkv., og er flm. hennar þakklátur fyrir hana. Jeg skal geta þess í þessu sambandi, að þann stutta tíma, sem stj. er búin að sitja að völdum, hafa nokkrir menn farið utan á kostnað landsins, þar á meðal nú fyrir skemstu tveir menn á Ibsenshátíðina. Slíkir menn, sem fara að einhverju leyti í landsins erindum, hafa oft áður fengið styrk til ferðakostnaðar, en oftar ferðast með dönsku eða norsku skipunum en þeim íslensku. En hjer eftir fá þeir þennan styrk greiddan með farinu sjálfu, og er það bæði ríkissjóði til minni útgjalda og styrktar Eimskipafjelaginu. Jeg mun greiða atkv. með viðaukatill., þótt jeg telji hana reyndar ekki nauðsynlega og hafa fremur litla þýðingu.