13.04.1928
Neðri deild: 70. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1243 í B-deild Alþingistíðinda. (297)
1. mál, fjárlög 1929
Pjetur Ottesen:
Það er nú nokkurnveginn sýnt, að afgreiðsla sú, sem fjárlagafrv. fjekk í Ed. á miðvikudaginn fyrir skírdag, verður sú endanlega afgreiðsla fjárlaganna frá þessu þingi. Það mun ákveðið af þingmeirihlutanum að ganga að fjárlagafrv. óbreyttu, og jeg býst við, að öðrum þyki ekki fýsilegt að stuðla að því að opna fjárlögin að nýju, ef hinu sama miðar fram um meðferð þeirra og varð í Ed., og það eru litlar líkur til, að breyting verði til batnaðar í því efni.
Mjer þykir rjett að taka nú til athugunar þær breytingar, sem hafa orðið í meðförum þingsins á tekju- og gjaldaliðurn fjárlaáafrv. og varpa ljósi yfir það, hver hin raunverulega niðurstaða af meðferð þingsins á fjárlagafrv. hefir orðið.
Í fjárlagafrv. eins og stjórnin lagði það fyrir þingið voru tekjurnar áætlaðar 9808600 kr. Í meðförum þingsins hefir tekjuáætlunin hækkað eins og hjer segir:
1. Hækkun á áætlunarliðum 375000 krónur.
2. Áætlaðar tekjur af nýjum skattaálögum, þegar frá er dregin niðurfelling gengisviðaukans af kaffi- og sykurtolli, 700000 kr. samtals 1075000 kr. Tekjurnar eru því áætlaðar nú 10883600 kr.
Gjöldin voru aftur á móti áætluð í fjárlagafrv. stjórnarinnar 9779741 kr. Í meðförum þingsins hafa gjöldin hækkað um 1071216 kr. Gjöldin eru því áætluð nú 10850757 kr. Af þessari hækkun, 1071216 kr., fer ¼, úr milj. í ýmiskonar styrkveitingar og annað þess háttar. Í þessari upphæð er til dæmis að taka, fyrir utan aukningu þá, sem orðið hefir á styrkveitingum til einstakra manna í 18. gr., 35 persónustyrkir, námsstyrkir, ferðastyrkir og þess háttar, sem nema samtals nær 50000 kr. Eins og yfirlitið um tekjur og gjöld fjárlagafrv., eins og það nú er, ber með sjer, er áætlaður tekjuafgangur um 32000 kr. En þessi niðurstaða er í fylsta máta villandi, því í 22. og 23. gr. fjárlagafrv. eru stórar upphæðir, sem stjórninni er heimilt að greiða úr ríkissjóði og sem telja má víst, að verði greiddar á því fjárhagstímabili, sem þetta fjárlagafrv., þegar það er orðið að lögum, gildir fyrir.
Má þar nefna :
1. Til Þingvallavegar alt að 200000 krónur.
2. Læknisbústaðar á Kleppi 30000 krónur.
3. Styrkur til smjör- og ostabúa 10000 krónur.
4. Eftirgjöf og endurgreiðsla til Árnes- og Rangárvallasýslna 86000 kr., og ýmislegt fleira, og sýnir þetta, þegar frá er dreginn hinn reikningslegi tekjuafgangur, 32000 kr., að á fjárlagafrv. er raunverulega yfir 300 þús. kr. tekjuhalli.
Þá má bæta því við, að í fjárlagafrv. er ekki áætlaðar nema 100 þús. kr. til landsspítalabyggingarinnar, en samkv. samningi á ríkissjóður að leggja fram til landsspítalabyggingarinnar 200 þús. kr. á árinu 1929, og má því telja, að tekjuhallinn á fjárlagafrv. sje í raun og veru 400 þús. kr.
Þá má geta þess, að í fjárlagafrv. er stjórninni heimilt að láta ríkissjóð ábyrgjast lán, sem einstakur maður, bæjar- og hreppsfjelög ætla að taka og eru að upphæð 1065000 kr.
Þannig lítur þá afgreiðsla fjárlaganna út í stórum dráttum.
Það, sem meðal annars má telja, að einkenni afgreiðslu fjárlaganna að þessu sinni, er:
1. Að stórvægilegar útgjaldaupphæðir, sem víst er um, að greiddar verði á því ári, sem þessi fjárlög gilda fyrir, eru veittar í 22. og 23. gr. og að þær koma þar af leiðandi ekki fram í hinni reikningslegu niðurstöðu fjárlaganna.
Með þessu er gengið í berhögg við það, sem allir viðurkenna og telja, að nauðsynlegt sje, að með fjárlögunum á hverjum tíma sje reynt að komast sem næst því að hægt er að sýna þá rjettu búskaparafkomu ríkissjóðs á því tímabili, sem fjárlög gilda fyrir.
2. Að stjórninni er veitt heimild til að láta ríkissjóð ganga í ábyrgð fyrir stærri fjárhæðum en venja er til, auk þess sem mjög orkar tvímælis um þessar ábyrgðir að öðru leyti.
3. Það þriðja, sem sjerstaklega einkennir afgreiðslu fjárlaganna að þessu sinni, er styrkja- og bitlingafarganið.
Þess eru engin dæmi áður, að jafnmiklu fje hafi verið ausið úr ríkissjóði í persónustyrki og yfirleitt allskonar styrkveitingar.
Hvað veldur því, að afgreiðsla fjárlaganna er nú að ýmsu leyti á annan veg en verið hefir?
Hvað veldur því, að talinn er að vera á fjárlagafrv. 32 þús. kr. tekjuafgangur, þegar á því er raunverulega 400 þús. kr. tekjuhalli? Og hvað veldur því, að ríkissjóður er nú látinn taka alt herðar sjer miklu stærri ábyrgðir en áður hefir verið, og hvað veldur þeim óskaplega ofvexti, sem hlaupið hefir í allskonar styrkveitingar á þessu þingi?
Svarið liggur opið fyrir. Núverandi stjórn og þingmeirihluti virðist ekki hafa gert sjer grein fyrir og ekki gætt þeirrar ábyrgðar, sem á hverjum tíma hvílir á stjórn og ráðandi þingmeirihluta um afgreiðslu fjárlaganna.
Á síðasta þingi lagði Ed. eins og nú síðustu hönd á afgreiðslu fjárlaganna, og þá eins og nú hafði stjórnin ákveðinn meiri hluta í þeirri deild. Það er þess vegna rjett að bera saman meðferð hv. Ed. á fjárlögunum í fyrra og nú.
Í fyrra var fjárlagafrv. afgreitt til Ed. með 327 þús. kr. tekjuhalla, en Ed. kom jöfnuði á tekjur og gjöld fjárlaganna, mestmegnis með því að færa niður útgjöldin. En hver hefir meðferð Ed. á fjárlögunum verið nú? Útgjöldin hafa verið stórum aukin, einkum þau, sem ekki koma fram í hinni reikningslegu niðurstöðu fjárlaganna. Nema þessar hækkanir Ed. samtals 315000 kr. Ábyrgðirnar hafa verið auknar og styrkja- og bitlingafarganið kemst þar fyrst í algleyming, um ¾ af persónustyrkjunum eru settir þar inn.
Þó að þannig sje nú um afgreiðslu fjárlaganna að þessu sinni, sem hjer hefir verið lýst, þá verður líklegast að telja þann kostinn skástan, úr því sem um er að gera, að ganga að fjárlögunum eins og þau nú eru, því telja má vonlaust með öllu, að hægt verði að koma fram nokkrum breytingum til batnaðar.