15.03.1928
Efri deild: 48. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3226 í B-deild Alþingistíðinda. (2975)

39. mál, lögtak

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Þetta frv. er komið frá hv. Nd. og var flutt þar af hv. 2. þm. Árn. (MT), að jeg hygg. En í meðferð deildarinnar tók það þeirri breytingu, að bætt var inn 2. gr. þess efnis, að með sömu takmörkunum um upphæð og um lögtak giltu skyldi hreppstjóra einnig vera heimilt að framkvæma fjárnám.

Allshn. hefir athugað frv. eins og það liggur fyrir og hefir komist að þeirri niðurstöðu, að nauðsynlegt sje að hækka að mun þá upphæð, sem hreppstjóra er heimilt að framkvæma lögtak fyrir eftir gildandi lögum.

Það má benda á það, að nú eru útsvör í sveitum orðin svo há, að þau fara oft langt fram yfir þá upphæð, sem hreppstjórum er heimilt að framkvæma lögtak fyrir, og virðist því eðlilegt að hækka þá upphæð, svo að hreppstjórar geti gert slík lögtök, en ekki þurfi sýslumann eða bæjarfógeta til, öðruvísi lítur nefndin á 2. gr., fjárnámsheimildina.

Fjárnám er annars eðlis en lögtak, og það geta verið þau tilfelli, að nokkuð tvísýnt sje að leggja þau í hendur hreppstjóra, sem yfirleitt eru ólöglærðir menn.

Því finnur nefndin ekki ástæðu til þess að setja þetta í lög frekar en verið hefir.

Í gildandi lögum er hreppstjórum heimilt að framkvæma fjárnám, ef upphæðin fer ekki fram úr 100 kr. Nefndin sjer ekki ástæðu til að hækka þessa upphæð hvað fjárnám snertir, og álítur, að það geti verið vafasamt í einstökum tilfellum að láta hreppstjóra hafa svo stór fjárnám með höndum, og gæti jafnvel í ýmsum tilfellum valdið tjóni.

Nefndin leggur því til, að frv. verði samþ. með þeim breytingum, sem brtt. á þskj. 461 gerir ráð fyrir, en hún er þess efnis, að 2. gr. falli niður.

Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta; jeg vona, að hv. deild skilji ástæður nefndarinnar og eigi hægt með að átta sig á því, hvað í brtt. felst.