20.03.1928
Neðri deild: 52. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3228 í B-deild Alþingistíðinda. (2982)
39. mál, lögtak
Frsm. (Hákon Kristófersson):
Þetta mál kemur nú endursent frá hv. Ed., sem hefir dregið úr frv. heimild til þess að framkvæma fjárnám. Að vísu hefir allshn. ekki átt fund um þetta mál síðan það kom frá Ed., og get jeg því ekki talað um málið fyrir hennar hönd. En jeg hefi borið fram brtt. á þskj. 534, sem er þess efnis, að hún setur frv. að öllu leyti í sama horf og það var í, þegar það fór frá þessari hv. deild.
Hv. Ed. hefir fundið það helst til foráttu þessu frv., að ekki mundi í hóf stilt heimild hreppstjóra til þess að framkvæma fjárnám í þeim tilfellum, sem frv. gerði ráð fyrir, þegar það fór hjeðan. Jeg skil annars ekkert í hv. Ed., sjerstaklega þar sem einn mjög mikils metinn lögfræðingur á þar sæti, því að það er vitað, að heimildin er þegar til, og er eiginlega 17 ára gömul. Þess vegna finst mjer það ganga firnum næst að taka þetta út úr frv. Jeg sje því málinu enga hættu búna, þó að það fari til Ed. aftur, og jeg vænti þess, að hv. deildarmenn geti fallist á það, að ef brtt. mínar verða samþ., þá sje sæmilega frá málinu gengið. Annars er mjer þetta ekki neitt sjerstakt kappsmál.
Jeg sje, að hv. 2. þm. Árn. hefir kvatt sjer hljóðs, og þykir mjer vænt um að fá að heyra álit hans um þetta mál, því að auk þess sem hann er flm. þessa frv. er hann með kunnugustu mönnum á þessu sviði, og skal jeg því ekki fjölyrða frekar um málið fyr en hann hefir flutt ræðu sína. En sem sagt, jeg vænti þess, að hv. deildarmenn sjái sjer fært að samþ. brtt. mínar á þskj. 534, enda þótt ekki hafi gefist tími til að taka þær til umræðu á fundi í allshn.