17.02.1928
Neðri deild: 25. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3238 í B-deild Alþingistíðinda. (3003)

59. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. (Gunnar Sigurðsson):

Jeg vil leyfa mjer fyrir hönd allshn. að biðja hæstv. forseta að taka þetta mál út af dagskrá, með því að komin er fram ný beiðni, er fer í sömu átt og sú, er þetta frv. felur í sjer. Þykir nefndinni rjettara, að þær verði samferða.