12.03.1928
Efri deild: 45. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3240 í B-deild Alþingistíðinda. (3010)
97. mál, kirkjugarður í Reykjavík
Frsm. (Jón Baldvinsson):
Eins og bent var á við 1. umr., fer frv. fram á það, að innheimtan fyrir legkaup verði framvegis falin kirkjugarðsverði, í stað þess að nú er hún hjá lögreglustjóra. Þetta er almenningi til hægðarauka, af því að fólk getur oft þurft að finna lögreglustjóra á þeim tíma, sem skrifstofur hans eru lokaðar.
Nefndin hefir fallist á, að frv. þetta verði samþ. með þeirri breytingu, að kirkjugarðsvörður setji tryggingu fyrir innheimtunni og að fjármálaráðuneytið gefi út reglur um bókhald og fjárskil kirkjugarðsvarðar. Ennfremur hefir nefndin lagt til, að í stað þess, að í frv. stóð, að lögin öðlist þegar gildi, skuli koma, að þau öðlist gildi 1. júlí 1928.
Fleira hefi jeg svo ekki að segja. Málið er einfalt, eins og allir sjá, og vænti jeg, að hv. þdm. geti fallist á frv. með þeirri breytingu, sem nefndin leggur til.