13.04.1928
Neðri deild: 70. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1254 í B-deild Alþingistíðinda. (302)

1. mál, fjárlög 1929

Einar Jónsson:

* Eins og að líkindum lætur, er það ekki nema eðlilegt, þó að þm. geti ekki alveg þagað við fjárlagafrv. eins og það er nú. Þó skal jeg lýsa því yfir strax, að jeg tel samgöngubótum landsins betur fyrir komið en áhorfðist í fyrstu. Og þó að öllum óskum okkar austanmanna í vegaeða samgöngumálum hafi ekki verið sint, hefir þó talsvert áunnist, og þakka jeg fyrir það.

Sömuleiðis vil jeg þakka lausleg ummæli hæstv. stjórnar við mig, þar sem hún hefir gefið í skyn, að hún mundi láta sig skifta ýmsar aðrar samgöngubætur í Rangárvallasýslu en þær, sem tilnefndar eru í fjárlögum. T. d. hefi jeg von um, að Strandarsýki verði brúað á næsta sumri. (Forsrh. TrÞ: Á þessu sumri !) Jæja, því betra, enda er Strandarsýki sá farartálmi á póstleiðinni austur um Rangárvallasýslu, að ekki er lengur hægt við að una.

Jafnframt þessu hefi jeg von um að fá styrk til þess vegarins, sem oft hefir verið minst á hjer og erfiðastur er talinn allra sýsluvega austur þar, en það er hinn svokallaði Fjallabaksvegur. Af einhverjum misgáningi, sem jeg hirði ekki um að nefna, hefir vegur þessi orðið útundan. En nú hefi jeg sterkt fyrirheit um það, bæði frá hæstv. stj. og vegamálastjóra, að þessi vegur verði bættur innan stundar, og enda er þess full þörf og sýslunni ofvaxið að gera það með öllum þeim kostnaði, er hún hefir af sínum mörgu og löngu sýsluvegum. Fyrir alt þetta vil jeg þakka.

En það þykir ef til vill dálítið snúið, að jafnhliða því og jeg þakka stjórninni undirtektir hennar um samgöngubætur í Rangárvallasýslu, þá skuli jeg þurfa að fara aðra leið og rengja ummæli, sem nýskeð komu fram í ræðu hjá hæstv. forsrh., þar sem hann fullyrti, að hjá Íhaldsmönnum hefði ríkt á þessu þingi mjög mikið ábyrgðarleysi um afgreiðslu fjárlaganna.

Þetta vil jeg á engan hátt viðurkenna, enda veit jeg, að hann meinar það ekki í fullri alvöru. En jeg vil í þessu sambandi minna hæstv. forsrh. á, að þegar fjárlögin fóru hjeðan í fyrra, voru þau með 320 þús. króna tekjuhalla, og eins og hann man, gat það ekki verið Íhaldsmönnum að kenna, því að hjer voru þeir í minni hl. En í hv. Ed., þar sem Íhaldsmenn voru í meiri hl., tókst að lagfæra þetta svo, að þaðan voru fjárlögin afgreidd með 22 þús. kr. tekjuafgangi.

Nú er það upplýst af hv. þm. Borgf., að þó að þetta frv. telji tekjuafganginn 32 þús. kr., þá sje það aðeins á pappírnum, og þegar alt er talið með og öll kurl koma til grafar, þá sje alls ekki um tekjuafgang að ræða, heldur tekjuhalla, sem nema muni nokkrum hundruðum þús. kr. En þá vil jeg spyrja: Hvaða ábyrgðarleysi lýsir sjer fremur nú hjá Íhaldsmönnum um afgreiðslu fjárlaganna en lýsti sjer hjá Framsóknarmönnum í fyrra? Annars ætla jeg ekki að fara að þræta um mismunandi ábyrgðarleysi flokkanna, enda hugsa jeg, að Íhaldsmenn neyðist til með atkv. sínum í dag að ganga inn á það, sem Framsókn eða meiri hl. þingsins telur best vera í þessu máli.

Eins og jeg hefi oft tekið fram, þá gef jeg mest fyrir samgöngubætur uppi í landi, svo og með ströndum fram, og vil þá í því sambandi minna á þetta margumtalaða strandferðaskip, sem sennilega hleypur bráðlega af stokkunum. Jeg heyrði hygginn mann og góðan tala um það nýlega, að samgöngur okkar væru betri á sjó en landi. En hann bætti því við: Ef Íslendingar hefðu tekið lán, t. d. 20 miljónir, til vegalagninga og brúagerða, þá hefði það margborgað sig.

Jeg er þessum manni alveg sammála og vildi því óska, að núv. hæstv. stj. legði margfalt meira kapp á að bæta samgöngur landsmanna en tíðkast hefir undanfarið. Því enn er það svo, að það er samgönguleysið, sem háir öllum þorra landsmanna mest. En háskinn ekki eins stór á sjó og uppi í sveit.

Þá vil jeg að síðustu taka undir fyrirspurn hv. 1. þm. Árn. (JörB) og vænti eftir greiðum svörum frá hæstv. forsrh. um, hvað járnbrautinni austur líði. Okkur austanmönnum er ant um, að járnbrautin komist austur, því að hún er eina fullnægjandi samgöngubótin austur yfir fjall, sem okkur hefir dreymt um. Við ljelega gerða vegi en dýra í viðhaldi getum við unað um stund, en ekki til frambúðar. Þess vegna er mjer ant um, hverju hæstv. forsrh. svarar til um þetta stærsta og mesta velferðarmál Suðurlandsundirlendisins.

Um styrkinn til Sláturfjelagsins er mjer sárt, að hann skyldi strikaður út, en verð þó að viðurkenna, að það hafi að ýmsu leyti verið sanngjarnt, því að slíkir beinir styrkir, sem veittir eru, geta ekki talist annað en gjöf, en liðleg og væg lánskjör eru oft besta hjálpin. Að hinu leytinu hefði jeg auðvitað verið þakklátur, ef styrkurinn hefði fengist, en úr því svo varð ekki, vænti jeg, að hæstv. stj. hjálpi fjelaginu til að ná í nauðsynlegt lánsfje til tilrauna þeirra, sem hjer er um að ræða.

Í þeirri von, að stj. landsins, og þá einkum Íhaldsmenn, stýri vegamálum landsins og samgöngubótum á þann hátt, að öllum komi að sem mestu liði; sjerstaklega hefi jeg þó í huga austursýslurnar þrjár: Árnes-, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslur. Og jeg ætla að enda ræðu mína með þeirri von, að það lifi aldrei í landinu sú stj., sem ekki styður þessar sýslur um auknar fullkomnar samgöngur.

* Ræðuhandr. óyfirlesið.