01.02.1928
Neðri deild: 11. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3249 í B-deild Alþingistíðinda. (3037)
56. mál, bæjarstjórn Ísafjarðar
Jón Auðunn Jónsson:
Jeg ætla aðeins að vekja athygli hv. allshn. á því, að hjer er farið fram á að taka stærstu jörðina í Eyrarhreppi af hreppnum. Mjer er ekki kunnugt um, að til þess hafi fengist samþ. hreppsbúa nje sýslunefndar.
Það hefir staðið til í nokkur ár að skifta Eyrarhreppi í tvent, þannig að Hnífsdalur verði sjerstakur hreppur, og Skutulsfjörður með Arnardal sjerstakur hreppur. En sje tekin af hreppnum stærsta jörðin, veikir það aðstöðu bænda í Skutulsfirði og þeir geta síður haldið sínu Sjálfstæði sem hreppur út af fyrir sig, ef þeir skyldu æskja þess. Að vísu gæti komið til mála, að Skutulsfjörður Sameinaðist Ísafjarðarkaupstað. Það var einu sinni á dagskrá. En hvað sem því líður, þá verður að leita álits hreppsbúa í máli, sem varðar þá svo mjög. Menn hljóta að sjá, hversu ósanngjarnt þetta er, þar sem kaupstaðurinn á ekki að taka á sig neinar ákveðnar byrðar, er hvíla á hreppnum. Jeg vil sem sagt biðja hv. allshn. um að athuga mál þetta nákvæmlega.