01.02.1928
Neðri deild: 11. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3251 í B-deild Alþingistíðinda. (3040)

56. mál, bæjarstjórn Ísafjarðar

Flm. (Haraldur Guðmundsson):

Jeg vil aðeins leiðrjetta það, sem hv. þm. N.-Ísf. sagði um að ræktunin myndi aðallega verða gerð í Seljalandslandi. Það er einmitt beggja megin árinnar, einkum í Tungulandi, sem ræktunarskilyrði eru best, enda er þegar byrjað á ræktun þar. Það er ekki heldur rjett hjá hv. þm., að aldrei sje tekin jörð af hreppi, nema leitað sje áður álits hreppsbúa og sýslunefndar. Það var ekki gert 1917, þegar Seljaland var lagt undir Ísafjarðarkaupstað.

Um skiftingu Eyrarhrepps skal jeg geta þess, að það er mín skoðun og fjöldamargra þar vestra, að ef úr henni verður, sje ekki um annað að gera en að Skutulsfjörður sameinist kaupstaðnum.