06.03.1928
Neðri deild: 40. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3252 í B-deild Alþingistíðinda. (3045)
56. mál, bæjarstjórn Ísafjarðar
Frsm. meiri hl. (Hjeðinn Valdimarsson):
Nefndin hefir ekki getað orðið á eitt sátt um frv. Hún er að vísu sammála um, að Ísafjörður fái bæjarstjóra, þegar meiri hl. kjósenda óskar þess, en svo nær samkomulagið ekki lengra. Meiri hlutinn telur ekki ástæðu til þess, að kosning á bæjarstjóra fari öðruvísi fram en venja mun í flestum öðrum kaupstöðum, sem sje að hann sje kosinn af bæjarstjórn.
Um 1. gr. frv. eru þó aðallega skiftar skoðanir í nefndinni.
Svo stendur á, að bæjarstjórn Ísafjarðar hefir um nokkurt skeið haft kúabú á jörðinni Tungu í Eyrarsveit, og þykir því eðlilegt, að sú jörð verði lögð undir lögsagnarumdæmi Ísafjarðar. Fyrir því liggja svipaðar ástæður og þegar jarðirnar Eiði, Breiðholt og Bústaðir o. fl. voru lagðar undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur fyrir nokkrum árum. Meiri hl. álítur þetta mjög sanngjarna ósk og vill mæla með þessu með þeirri breytingu, að sett verði ákvæði um það, hvernig fjárskifti milli Ísafjarðarkaupstaðar og Eyrarhrepps fari fram, og skuli atvmrh. skera úr, ef samkomulag næst ekki milli hreppanna.
Frá Eyrarhreppi, eða að minsta kosti frá oddvita hreppsins, hafa komið mótmæli gegn því, að Tunga verði lögð undir Ísafjörð. En þó með því fororði, að verði Tunga lögð undir kaupstaðinn, þá verði og undir hann lagðar hinar aðrar jarðirnar í Skutulsfirði. Væri það að vísu eðlilegt eftir staðháttum. En það mál er of lítið undirbúið til þess að því verði ráðið til lykta á þessu þingi, og til þess mundi þurfa að leita álits sýslunefndar. Meiri hl. virðist nægilegt að leggja Tungu að þessu sinni undir lögsagnarumdæmi Ísafjarðarkaupstaðar, og telur rjett að taka meira tillit til kaupstaðarins en þeirra mótmæla, sem fram hafa komið.