06.03.1928
Neðri deild: 40. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3270 í B-deild Alþingistíðinda. (3059)
56. mál, bæjarstjórn Ísafjarðar
Magnús Torfason:
Mjer þykir töluvert undarlegt, hve skarpar umr. hafa nú orðið um þetta mál. Og það þeim mun einkennilegra, þegar jeg hugsa til þess, að árið 1917 var jörðin Seljaland í Eyrarhreppi lögð undir Ísafjarðarkaupstað án þess að það sætti neinum mótmælum. Þá voru þeir þingmenn: Skúli heitinn Thoroddsen og Sigurður Stefánsson, sællar minningar. Jeg hefi síðan aldrei heyrt eitt orð á móti þessari sölu, og minnist þess, að fáir fylgdu þessari breytingu þá með meiri áhuga en núverandi háttv. þm. N.-Ísf. Jeg segi honum þetta alls ekki til lasts, af því að hann er á móti þessari jarðasölu nú. Þvert á móti finst mjer eðlilegt, að hann vilji standa vel í ístaðinu fyrir hrepp þann, sem hann er fulltrúi fyrir nú.
Um frv. þetta verð jeg að segja það, að eins og það lá fyrir fanst mjer vanta í það ákvæði, en úr því hefir verið bætt með brtt. meiri hl. allshn. Það er hreinn misskilningur að vera að vísa til sveitarstjórnarlaganna um skiftingu hreppa í þessu sambandi. Hjer er ekki um neitt slíkt að ræða; þar um á atvmrh. að ráða. En hjer er um að ræða skiftingu milli kaupstaðs og hrepps, og þar á löggjafarvaldið að hlutast um. Annars fæ jeg ekki betur sjeð, hvað þetta mál snertir, en að tryggilega sje búið um skiftinguna milli hlutaðeigandi hrepps og kaupstaðar, því ef ágreiningur verður milli þessara aðilja, þá á atvinnumálaráðuneytið að skera úr, og mjer finst það fullkomlega vera móðgun við núverandi stjórn, ef henni er ekki treyst til þessa. (MJ: Kannske stjórnin segi af sjer fyrir þessar sakir). Ekki býst jeg við því, enda þótt sumir kannske óski þess, og það þó fyr hefði verið. Hvað Ísafjarðarkaupstað snertir, þá er enginn kaupstaður á landinu ver settur með land til ræktunar en hann. Hann hefir aðeins fengið þessa einu litlu jörð til umráða; þess vegna er jeg hissa á, að kröfur þær, sem hjer er um að ræða, skuli ekki hafa komið fram miklu fyr, því að mjer finst kaup þessarar jarðar, sem hjer er um að tala, vera eins og hver önnur nauðsynleg heilbrigðisráðstöfun fyrir kaupstaðinn, vegna aukinnar mjólkur. Mjer finst því enginn kaupstaður landsins eiga jafnmikinn rjett á að fá aukið land sitt eins og Ísafjörður. Það hefir ekki verið talað um það, þó að Akureyrarkaupstaður legði undir sig lönd umhverfis sig, enda þótt hann standi mitt í hinu frjósama Eyjafjarðarhjeraði og mjólkin flói þar svo að segja út úr hverjum dalli. Um sýslusjóðsgjöldin af jörð þessari ætla jeg ekki að fjölyrða; þau eru svo lítið atriði í þessu máli, að það tekur ekki tali.